Læknaneminn - 01.10.1991, Síða 67
Hvers konar forvörnum er völ á?
Bóluefni úr heilum, dauðum Bordetella
pertussis bakteríum var endanlega sett á markað á
fimmta áratugnum en hafði þá verið í þróun í tvo
áratugi. (5) Þetta heilfrumubóluefni er enn í notkun í
mörgum löndum. Framleiðsluaðferðir eru örlítið
misntunandi frá einu fyrirtæki til annars, en byggja á
sömu meginreglum, Þetta bóluefni hefurmargagalla.
Það er t.d. erfitt að ákvarða styrkleika þess og virkni af
nokkurri verulegri nákvæmni og er aðeins hægt með
óbeinum prófunum á músum. Styrkleikinn ergefinn
upp í eininguni og mælir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
með að gefa 17 einingar í allt til að fá fram bestu
mögulega vernd. Venjulegaer þessum skammti skipt
í fjórar inndælingar með ákveðnu millibili, stærri
skammtar í einu mundu auka hliðarverkanir.
Hliðarverkanir, bæði staðbundnarog almennar,
eru aðalgalli þessa bóluefnis. Þeim mildari svipartil
hliðarverkana við önnurbóluefni en eru algengari við
kíghóstabólusetningu en aðrar bamabólusetningar.
Roði, bólga og eymsli á stungustað og hitahækkun
koma fyrir hjá 30-70% bólusettra. Aðrar
hliðarverkanir eru sérkennandi fyrir
kíghóstabóluefnið, t.d. óstöðvandi grátur, kramparog
lost, sem koma fyrir í 0,1-1% tilfella. (5) Alvarlegri
hliðarverkanir eins og sköddun á heila eða jafnvel
dauðsföll hafa einnig verið sett í samband við
kíghóstabólusetningu. Það var einkum um miðjan
áttunda áratuginn sem kenningar um heilaskemmdir
af völdum kíghóstabóluefnis komu fram. (6,7) Miller
og samstarfsmönnum taldist til að alvarleg
miðtaugakerfiseinkenni kæmu fram í 1:110.000
bólusettum börnum. (8) Sannanir vantar þó til að
staðfesta að bóluefnið sé hinn raunverulegi
skaðvaldur þar sem ungböm eru bólusett á þeim aldri
sem einkenni miðtaugakerfisskemmda af ýmsum
orsökum eru að koma í ljós.
Fjölmiðlar, einkum í Bretlandi. gerðu sér
mikinn mat úr grunsemdum um miðtaugakerfis-
skemmdir af völdum kíghóstabóluefnis með þeim
afleiðingum að þátttaka í kíghóstabólusetningum þar
í landi datt úr um 90% niður í um 30%. Við það fór
kíghóstatilfellummjögfjölgandi semog dauðsföllum
af völdum kíghósta. (5) Svipaða sögu má segja um
önnur lönd sem ýmist hættu kíghóstabólusetningum
eðadrógu mjög úrþeim.s.s. Italía, Vestur-Þýskaland,
Japan og Svíþjóð. Þetta sannaði svo ekki varð um
villst að það var mun hættulegra að bólusetja böm ekki
við kíghósta heldur en að bólusetja þau með þessu
bóluefni þrátt fyrir þær hættur sem það kynni að
valda (9).
I enn öðrum löndum hefur kíghóstabólusetning
aldrei verið framkvæmd skipulega fram að þessu, og
íþeimersýkingar- ogdánartíðni há. Verst erástandið
í þróunarlöndunum.
Árið 1942 voru 770 böm í REykjavík bólusett
með kíghóstabóluefni framleiddu hér á landi og var
það talið hafa veitt nokkra vemd (15). Upp úr 1950
hófust síðan kíghóstabólusetningar með innfluttu
bóluefni í fyrstu óreglulegar, en árið 1955 var komið
á kerfisbundnum bólusetningum í Reykjavík.
Þátttaka varð þó ekki almenn fyrr en 1959 en þá
gekk svæsinn kíghóstafaraldur. Heilfrumubóluefnið
hefur verið notað óslitið hér síðan og er gefið með
öðrum ungbarnabóluefnum við 3ja, 4ra, 6 og 14
mánaða aldur. Þrátt fyrir það gengur kíghósti hér
annað til þriðjahvert áren faraldrar eru ekki nærri eins
svæsnir og þeir voru áður en almenn bólusetning
hófst. Síðustu dauðsföll af völdum kíghósta hér voru
í faraldrinum 1959 en þá dóu tvö börn. ( Sjá töflu 1.)
Ár Fjöldi sjúklinga Dauðsföll
1926-1928 6994 160
1935-1936 8355 124
1941-1943 4732 53
1945-1946 1685 13
1950-1955 8433 10
1959-1960 4213 2
1965-1966 2457
1971-1972 707
1974-1976 770
1978-1979 800
1982-1984 852
1987-1988 215
Tafla I. Kíghóstafaraldrar á íslandi 1928-1988. (Úr
heilbrigðisskýrslum)
LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
65