Læknaneminn - 01.10.1991, Side 90

Læknaneminn - 01.10.1991, Side 90
annað hvort stafi eingöngu eða keilur (Daw ofl., 1990). Nýlegar niðurstöður benda til þess að allar tvískauta frumur er fá beina örvun frá stöfum eingöngu séu afskautandi (“ON”) frumur í spendýrum, en að keilursendi bein boð til bæði “ON” og “OFF” fruma (Dacheux og Raviola, 1986; Muller ofl, 1988). Ef b-bylgju vantar vegna óeðlilegrar starfsemi ON fruma kemur höfundi þessara orða ekki á óvart að náttblinda sé afleiðingin. En frekari athuganir þarf til að staðfesta þessa tilgátu. Fráklínísku sjónarmiði er það nokkur ókostur að fram til þessa hefur eingöngu verið hægt að nota sjónhimnurit sem skráningu á heildarsvörun sjónhimnu. Allar tilraunir til að skrá klínískt frá staðbundnum svæðum á sjónhimnu, t.d. með ljósáreitum sem eru smá að flatarmáli, hafa fallið um Mynd 10. Sjónhimnurit, tekin með ljósertingu gegnum infrarauða augnbotnsmyndavél frá miðgróf (macula). Vinstri dálkur sýnir skráningu með hefðbundinni rafsíun á formagnara, en hægri dálkur sömu skráningu með þrengri bandvídd til þess að greina að svokallaðar “oscillatory” spennur (sjá nánar í næstu grein). Stærð áreitis í gráðum horns á sjónhimnu er sýnd með tölum og samsvarandi myndum vinstra megin við hverja röð skráninga. Efsta skráning (5 gráður horns) er eingöngu frá litgróf (fovea). Skráningarfyrir miðju og þær neðstu voru teknar viðertingu utan við litgróf, þ.e. í 5-10 gráður horns fyrir miðju áreitis féll ekkert ljós, heldur aðeins 5 gráður uinhverfis eins og sýnteráskýringarmyndum. BreytteftirMiyakeotl, (1988), með leyfi höfunda. þá staðreynd að hluti þeirra ljósgeisla sem berast frá slíkum áreitum hafa tilhneigingu til að dreifast um augnbotn, og þar með erta ljósnema utan þess svæðis semætluneraðerta(Boynton, 1953). Jafnframthefur reynst illmögulegt að tryggja með vissu að slík áreiti erti nákvæmlega það svæði sem ætlun er að skrá frá eingöngu. Nýlega hefur hinsvegar próf. Miyake og starfshópur hans í Nagoya fundið tæknilega lausn er virðist geta leyst bæði þessi vandamál (Miyake ofl, 1988). Lausn þeirra felst í að breyta augnbotns- myndavél (fundus camera), í samvinnu við verkfræð- inga hjá japönskum framleiðanda slfkra tækja, á þann veg að hægt er að fylgjast með augnbotni (með infrarauðu Ijósi, sem ertir ekki ljósnema) meðan skráning sjónhimnurits fer fram, en jafnframt senda Ijósáreiti í gegnum linsukerfi myndavélarinnar nákvæmlega á þann stað á sjónhimnu sem áhugi er á að skrá frá. Ef sjúklingur hreyfir augun eða ef áreiti af einhverjum öðrum ástæðum fellur á annan stað á sjónhimnu en til erætlast, er hægt að útiloka skráningu og reyna aftur. Hægt er að stjórna stærð áreitis mjög nákvæmlega með þessum búnaði, auk annarra breyta eins og tímalengd áreitis, birtumagni og bylgju- lengdum ljóssins. A mynd 10 er sýnd dæmi um skráningu frá miðgróf eingöngu með þessari aðferð, og jafnframt sýnd áhrif stærðar áreitis á slíka svörun. En stærsti vandinn reynist vera óæskileg dreyfing Ijósgeisla út fyrir ertingarsvæði (“light scatter”), en með endurbótum á linsukerfi tækisins og stórum skömmtum af japanskri þrautseygju hefurnú tekist að draga þolanlega úr þessu. Með þessum búnaði próf. Miyake og félaga er hægt að bera saman sjónhimnurit mismunandi svæða á sjónhimnu. Þannig væri t.d. við athugun á “sector” retinitis pigmentosa hægt að skrá svörun skemmdra svæða, og jafnframt kanna ástand nærliggjandi svæða er virðast heilbrigð. Möguleikarnir sem þetta gefur eru óendanlegir, og ef þessi tækjabúnaður kemst á almennan markað mun sjónhimnurit sem greiningartækni í augnlækningum taka stór skref fram á við. Enn sem komið er, eru aðeins til tvö slík tæki (Miyake og Horiguchi, samtöl við höfund, 1989-1991). I næstu grein mun ég ræða tilraunir til að nota sjónhimnurit við greiningu á starfsemi innri sjónhimnu og sjóntaugar, og jafnframt ræða fleiri klínískar raflífeðlisfræðilegar aðferðir, svo sem 88 LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.