Læknaneminn - 01.10.1991, Qupperneq 107
Alþjóðasamskipti læknanema
Ingólfur Einarsson læknanemi
Það er mjög góður kostur fyrir íslenska
læknanema að eiga möguleika á því að komast lil
annarra landa og dvelja þar í góðu yfirlæti í ákveðinn
tíma. Nemendur fá gjarnan ókeypis fæði og húsnæði
meðan á dvöl þeirra stendur og hafa yfirleitt frjálsar
hendur með mætingar og vinnu á sjúkrahúsi, þ.e.
nemandigeturnýttsérdvölinatil verulegslærdóms,til
að kynnast framandi aðferðum til lækninga og taka
lífinu létt eða til að kynna sér aðstæður m.t.t.
væntanlegs sérnáms.
Það sem gerir íslenskum læknanemum þetta
kleift er að nefnd innan Félags læknanema, stúdenta-
skiptanefnd (IMSIC) sem er aðili að Alþjóða-
samtökum læknanema, IFMSA (International
Federation of Medical Students' Associations).
IFMS A, sem eru óháð og ópólitísk samtök læknanema
víða úr heiminum, var stofnað árið 1951 til þess að
styrkja skilning læknanema á mikilvægi alþjóðlegrar
samvinnu í læknisfræði og annari heilbrigðis-
þjónustu:
- með skipulögðum stúdentaskiptum milli
landa,
- með aukinni samvinnu milli læknaskóla, bæði
innan hvers lands þar sem margir læknaskólar
eru og einnig milli landa og
- með því að auka tengsl milli læknafélaga og
annarra alþjóðlegra samtaka.
IFMSA er verkfæri læknanema víðsvegar að til
að tala saman um efni tengd heilbrigði og læknisfræði,
til að móta stefnur og grípa til viðeigandi ráðstafana.
IFMSA er verksmiðja fyrir læknanema sem
framleiðir tækifæri til lærdómsríkra og
menningarlegra stúdentaskipta og til öflunar fjár og
sjálíboðaliða fyrir þau verkefni sem í gangi eru innan
IFMSA.
IFMSA hefur haldið tengslum við Alþjóðlegu
heilbrigðisstofnunina (WHO) síðan árið 1969, hefur
sæti fyrir fulltrúa sinn á þingum stofnunarinnar og
getur talað máli IFMSA á alþjóðavettvangi. WHO
hefureinnigstyrktýmis verkefni sem eru ígangi innan
IFMSA. Annarserfétilstarfseminnaraðallegafengið
með félagsgjöldum þar sem gjaldið fer eftir fjárstöðu
hvers lands, þ.e. lönd eru flokkuð niður í 4 hópa, A, B,
C og D. Fátækustu löndin eru í flokki A og borga
lægstu félagsgjöldin,en lönd í D flokki, með bestu
fjárhagstöðu eins og t.d. ísland og flestar V-Evrópu
þjóðir, borga þau hæstu. Þetta er gert til að auðvelda
læknanemum fátækra landa og þá ekki síst löndum
þriðja heimsins aðild að IFMSA.
Ráðstefnur IFMSA samanstanda af aðalfundi
IFMSA (General Assembly) og fundum nefnda
IFMSA.
Aðalfundurinn (GA) fer fram í ágúst á hverju ári
og er æðsta vald IFMSA. Þar eru málin rædd, lögum
og reglugerðum IFMSA breytt og stefnur teknar í
málum sem snerta starfsemi samtakanna. Hvert land
sem er fullgildur meðlimur hefur kosningarétt á
þessum fundi og er nauðsynlegt fyrir okkur, IMSIC -
stúdentaskiptanefnd F.L., að sækja þessa ráðstefnu.
Þannig höldum við tengslum við önnur aðildarlönd,
fylgjumst með hvað er að gerast hjá þeim og lærum
hvert af öðru hvernig standa eigi að starfseminni
heima fyrir. Einnig nýtum við okkar kosningarétt
þannig að málum verði sem best á veg komið fyrir
okkur og þá sem við viljum styðja við bakið á. Ef við
tökum mið af hinni frægu höfðatölu okkar Islendinga
þá vegur atkvæðisréttur okkar hlutfallslega mest.
LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
105