Læknaneminn - 01.10.1991, Síða 109
IFMSA og friður:
SCOMP, The Standing Committee On
Medicine for Peace, hefur það að markmiði að dreifa
fróðleik um læknisfræðilegar afleiðingar stríðs.
Meðal annars tekur SCOMP nú þátt í uppsetningu
flóttamannabúða í Zintbabwe sem er á vegunt IPPN W
(International Physicians for Prevention of Nuclear
War) og safnar hlustunarpípum, hitamælum og
blóðþrýstingsmælum fyrir lönd sem á þessu þurfa að
halda. Nefndin styður þær hreyfingar sem berjast fyrir
friði í heiminum.
IFMSA og frumheilsugæsla:
Hamrað er á frumheilsugæslu með fyrirlestrum,
samræðum og ráðstefnum en þessi starfsemi byrjaði
innan IFMS A þegar áhugi kviknaði á aðstoð stúdenta
við frumheilsugæslu í Iöndum þriðja heimsins.
Nokkrum sinnum var reynt að fara af stað með
verkefni innan þróunarlandanna en það gafst frekar
illa. Þó lærðu menn á mistökunum og verkefni sem
kallað er “Village Concept”(VC) var kontið af stað
1988 hefur gefist mjög vel og er enn í gangi.
Verkefnið felst í því að komið var á fót
heilsugæslustöð í þorpi einu, Ojobi, í Ghana og
þangað eru sendir læknanemar í þrjá mánuði sem um
það sækja. Þar þjálfast þeirí frumheilsugæslu um leið
og þeir miðla og nota þekkingu sína til aðstoðar
innfæddra. Einn íslenskur læknanemi hefur fara til
Ghana á vegum IFMSA. Nú er að hefjast svipað
verkefni í Kalkútta og það eru svissneskir læknanemar
sem eiga upptökin að því og eru byrjaðir að
skipuleggja það. Þetta eru dæmi um verkefni sem
WHO tekur þátt á að styrkja.
IFMSA og flóttamenn:
SCOR, The Standing Committee On Refugees,
stuðlar að aukinni athygli heilbrigðissamtaka og
samfélaga á flóttamönnum og þörf á aðgerðuni. I
mörgum löndum eru flóttamenn sem hafa flúið undan
náttúruhamförum eða aðstæðum sköpuðum af
manninum sjálfum. Margir lifa við óþolandi bágindi
og sult í flóttamannabúðum, þeir eru heimilislausir.
Þaðermikil þöif ávatnþmatog skjólitil þessað koma
þessu fólki á réttan kjöl og ekki síst þörf á þjálfun
heilbrigðisstarfsmanna í þeim sérstöku vandamálum
sem eiga sér stað í slfkum flóttasmannabúðum.
Læknanemar í Kuwait stofnuðu SCOR 1983 og
fylgdu því eftir með flóttamannahjálp í Súdan. Þessi
hjálp felst í því að vekja fólk til umhugsunar um
ástandið og söfnun framlaga.
Starfið heiina fyrir.
Ég kynntist starfi IMSIC fyrst sumarið 1990, en
voru gerð boð eftir læknanemum til að starfa um
sumarið vegna þess að von var á miklum fjölda
erlendra stúdenta hingað til lands. Sumarstarfið felst
í að taka á móti nemunum, koma þeim í gistihúsnæði,
fylgja þeim á þá deild sem þeir velja sér og kynna þá
fyrir læknum viðkomandi deildar. Einnig sjáum við
um að koma saman ferðaáætlun í samvinnu við
AIESEC (viðskiptanemar), IAESTE (verkfræði- og
raunvísindanemar) og ELSA (lögfræðinemar), en
farið er á fallega staði um nær hverja helgi og mikið
trallað. Þettaermjögskemmlilegtoggotttækifæri til
að kynnast alls kyns fólki, því þama koma saman allra
þjóða einstaklingar úr ýmsum fögum.
í ágúst 1990 hitti svo á að mér gafst óvænt kostur
á að fara á aðalfund IFMS A sem haldinn var í Hradec
Kralové í Tékkóslóvakíu. Þangað fór ég ásamt Hrönn
Harðardóttur og kom okkur mjög á óvart sú mikla
starfsemi sem á sér stað innan IFMSA eins og ég hef
rakiðhéraðofan. Ráðstefnan fólstímikilli fundarsetu
sem var nokkuð erfitt að setja sig inní vegna ýmissa
formlegheita og “ráðstefnu” tungumáls sem var
nokkuð nýtt fyrir okkur. Nú átti að rífa IFMSA upp úr
Á Álandseyjum ásamt tékknesku læknanemunum sem
bjuggu með okkur
LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
107