Læknaneminn - 01.10.1991, Blaðsíða 116
Tengsl við önnur stúdentafélög og
stúdentaráð
Formannafundir voru haldnir mánaðarlega í
allan vetur. Komu þá saman formenn allra félaga
stúdenta innan H.I. ásamt formanni SHI, Sigurjóni Þ.
Ámasyni svo og fulltrúum úr stjórn Stúdentaráðs.
Þessir fundir voru oft ansi líflegir. Kynnt voru ýmis
mál ervörðuðu stúdenta, þau mál rædderhverju sinni
bar hæst oghugmyndirviðraðarumýmisefni. Ivetur
bar kennslukönnun H.Í., Gæðamatið svokallaða og
Stundakennaradeiluna hvaðhæst.
Deildarráð
Fer með framkvæmdavald Læknadeildar og
hefur í höndum sér ákvarðanavald um flest mál
deildarinnar. Deildarráð fundar á 1/2 mánaðar fresti.
Deildarforseti er Gunnar Guðmundsson prófessor.
Stúdentareiga 2 fulltrúa á þessum fundum, báða með
atkvæðisrétt. Auk þeirra og deildarforseta eru 5
atkvæðisbærir menn. Áheyrnaraðilar eru fulltrúar
hjúkrunarfræði,sjúkraþjálfunaroglyfjafræðinnarauk
formanns kennslunefndar og varadeildarforseta. Á
þessum fundum eru afgreiddar ýmsar beiðnir sem
berast Læknadeild og álit. Einnig fer oft rnikill tími í
afgreiðslu sérfræðiumsókna. Þetta er þó kjörinn
vettvangur fyrir stúdenta að koma sínum málum á
framfæri og kynna það sem helst ber við hverju sinni.
í vetur var það nýmæli að stúdentar tóku aukinn
þátt íýmsum nefndarstörfum. Fengum við sinn hvem
fulltrúanní Alþjóðasamskiptanefnd Læknadeildarog
nefnd sem fjallar um möguleikann á einingakerfi við
læknanám hérlendis. Undirrituð var svo valin í
Fjársýslunefnd að henni fjarstaddri eftir tillögu ritara
og meðstjórnanda sem þá sátu fundinn .....takk,
strákar, úff....!
Deildarfundir
Er æðsta vald Læknadeildar og öll meiriháttar
ákvarðanataka fer þar fram. Deildarfund sitja allir
fastráðnir kennarar deildarinnar auk 15 - 16
læknanema. Við höfum atkvæðisrétt nema þegar
kosið er um framgang kennara og fastráðningar.
Á starfsárinu hafa verið haldnir 5 deildarfundir
.Það sem upp úr stendur er að sjálfsögðu
prófessorskosningin í skurðlæknisfræði . Það þurfti
3 fundi áður en endanleg niðurstaða fékkst og Jónas
Magnússon tók við embættinu.
Framhaldsmenntunarráð var líka í sviðsljósinu
og lagði áborð staðal vegna kandidatsnámsins. Þessi
staðali hefði gert það að verkum að rninni sjúkrahús
svo sem sjúkrahús Akraness og St. Jósefsspítali í
Hafnar-firði gætu ekki tekið til sín kandidata í vinnu
ogkennslu. Urðu heitar umræður um þessi mál og svo
fór að deildarfundur samþykkti staðalinn. Stuttu eftir
konr þó bréf frá Heilbrigðisráðuneytinu sem ónýtti
samþykkt fundarins og taldi Læknadeild hafa farið út
fyrir sitt valdsvið. Eru málin óbreytt nú. I framhaldi
af þessu fengum við 2 fulltrúa inn í Framhalds-
menntunarráð. Er um að gera að fylgjast vel mað
þessum málum því hlutimir gerast hratt og mikilla
hagsmuna að gæta.
Kynningarfundur með 1. ári
Var haldinn 17 . september. Voru nemendur
boðnir velkomnir í deildina, þeim kynnt starfsemi
F.L. og þeir hvattir í embættisstörf. Með í för var
Ferdinand Jónsson sem útlistaði tjörugu Fulltrúaráði
og minnli á sívinsælt Kynningarball.
✓
Ymis mál.
Stundakennaradeilan
Ofáir formannafundir snerust um þessa deilu í
vetur. Strax í byrjun september hvatti FÍN (Félag
íslenskra Náttúrufræðinga) stundakennara í sínu
félagi að leggja niður kennslu. U.þ.b. 10 önnur félög
fylgdu í kjölfarið. Kröfur stundakennara voru
tvíþættar. Þeir vildu samningsrétt og sömu laun fyrir
sömu vinnu. Þetta verkfall virtist ekki hafa mikil áhrif
í fyrstu. Haustönnin bjargaðist fyrir hom í öllum
dcildum en verr leit út með vorönn. Reynt varað mæta
þessari krísu með bráðabirgðalausnum. Fastráðnir
kennarar bættu við sig kennslu, búnar voru til
hlutalektorsstöður og smærri valnámskeið felld niður.
Þegar upp var staðið hafði lítil röskun orðið í flestum
háskóladeildum. Hjúkrunarfræðin og sérstaklega
sjúkraþjálfun urðu hvað verst úti en kennsla bjargaðist
þó með áðurnefndum aðgerðum. Utskrift var með
114
LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.