Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1991, Blaðsíða 118

Læknaneminn - 01.10.1991, Blaðsíða 118
Nú er byrjað að bólusetja 3. - 6. árs læknanema. ErþaðgertáBráðamóttökuLsp. Mikilvægteraðhver og einn sjái um sínar ónæm isvarn ir sjálfur. Frá og með næsta hausti ættu allir eldri nemar að vera fullbólusettirogeingöngu tilvonandi 3 . ár sem þarfá þessum aðgerðum að halda. Suðurgata 26b Félagsheimili læknanema hefur verið lítið nýtt síðustu ár og eingöngu fámennur hópur ratar þangað núorðið. I sumar fengum við að vita að von væri á nýjum íbúum sem ætluð var aðstaða til jafns við okkur. Ekki sást þó nokkur hræða fyrr en skyndilega í haust að hringt var í fulltrúa stjórnar og tilkynnt að við þyrftum að vera búin að rýma neðri hæð húsnæðisins fyrir kl. 5 sama dag. Þegar við svo komum á staðinn um fjögurleytið var búið að ganga frá öllum húsgögnum okkar inn í lítið herbergi og Félag Uppeldisfræðinema flutt inn . Sem komið er höfum við efri hæðina til eigin umráða utan 1 herbergi. Samtals eru þetta 4 litlar herbergiskytrur þ.s.ætlunineraðhafatölvurfélagsins , ýmis fundargögn og það sem eftir lifir af ljósritanum okkar. Skv. framtíðarskipulagi Læknagarðs erokkur ætlað herbergi á 1. hæð. Vegna framkvæmdaleysis er óhægt að segja til um hvenær það verður tekið í gagnið. Lesstofumál Viðunandi lausn virðist seint ætla að fást í þessum málum. Eins og staðan er í dag höfum við 2 lesstofur á 3 . hæð Læknagarðs. Stóra stofan telur 30 borð, smærri stofan 9. í vetur var svo fyrir tilstilli Þórarins húsvarðar, innréttað herbergi á 1. hæð (kjallara ) og sett inn borð fyrir 6. árs nema. Ný embætti voru stofnuð á síðasta aðalfundi, lesstofustjórar. Skráð var lestrarviðvera læknanema. Þegar samantekt var gerð kom í Ijós að nýting lesstofa er mjög góð. Þannig var að meðaltali lesið í 3.9 klst. við hvert borð á dag fyrir áramót en 4.8 klst. eftir áramót. .Einnig var gerð könnun á hversu margir koma til með að þurfa lesstofu nú í vetur. Reyndust u.þ.b. 100 manns þurfa lesstofupláss "stundum - alltaf" og er þá 1. árið ekki meðtalið . Aðstaðan eins og hún er í dag nægir okkur ekki. Hugmyndir hafa verið uppi um að nýta gráa tómið framan við litlu lesstofuna svo og að hluta núverandi kaffistofu. Þannig mætti bæta við 40 - 50 borðum. Málið er að þetta húsnæði er ætlað Tannlæknadeild í framtíðinni. Leitað hefur verið til deildarforseta bæði með ílrekuðum fyrirspurnum á deildarráðsfundum og í gegnum Kennslunefnd sem gerði vettvangskönnun í voráöllumherlegheitunum. Stór hópur þáverandi 1. árs nema fjallaði um þessi mál á Kennslumála- ráðstefnu í mars (sjá skýrslu formanns Kennslumálanefndar). Að sögn deildarforseta hefur á endurteknum fundum sínum með þáverandi rektor, Sigmundi Guðbjarnasyni komið fram skýr andstaða rektors við að eigna nemum ákveðið húsnæði. Lesstofur eru fyrir alla. Upp úr miðjum september hélt undirrituð ásamt formanni Kennslumálanefndar á fund núverandi rektors, Sveinbjarnar Bjömssonar og útlistaði málið fyrir hann. Fyrir rektorskjör í vor kom rektor í Læknagarð t.a. skoða herlegheitin og er því málum kunnugur. Það er skemmst frá því að segja að hann tók vel í þessa umleitan okkar. Hans næsta skref verður að ræða við kennslustjóra og funda með þeim mönnum sem húsnæðið er ætlað skv. skipulagi. Niðurlag Stiklað hefur verið á stóru og reynt að gera grein fyrir því helsta sem skiptir okkur máli. Framundan er næg starfsemi fyrir nýja stjóm og skemmtilegur tími. Að lokum vil ég þakka því fólki sem ég hef unnið með í vetur góða viðkynningu og óska væntanlegri stjóm alls hins besta á komandi starfsári. Svo er bara um að gera að mæta í Stjórnarskiptapartýið í kvöld og hafa þaðGAMAN !!! Fyrir hönd stjórnar, Vigdís Þórisdóttir, formaðurF.L. 116 LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.