Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1997, Síða 42

Læknaneminn - 01.04.1997, Síða 42
Fritz H. Berndsen 1), Tómas Guðbjartsson 2), Jónas Magnússon 3) Mynd 9. Sjálfhelduhaull [44] a) Smágirni hjá sjúklingi með sjálfhelduhaul og skerta blóðrás til garnarinnar (strangulatio). Dökku svæðin eru þau sem voru klemmd inni í haulnum en búið er að draga smágirnið út úr haulnum. b) I þessu tilfelli þurfti ekki að nema á brott dökku svæðin þar sem görnin jafnaði sig þegar lagðir voru yfir hana volgir dúkar. dreginn inn í kviðarholið er bakveggurinn styrktur með því að leggja yfir hann poiypropylene-net. Aðgerðir við lœrishaul Lærishaular (hernia femoralis) eru um 7% af öllum kviðslitum[46] og eiga þeir upptök sín neðan við nára- bandið í svokölluðum lærisgangi (canalis femoralis) og þar liggur haullinn miðlægt við v. femoralis (sjá fyrri grein). Eins og áður hefur komið fram eru lærishaular algengastir hjá eldri konum, sérstaklega hjá þeim sem gengið hafa með mörg börn og hjá feitum einstakling- um. Hættan á sjálfhelduhaul er umtalsvert meiri en hjá sjúklingum með nárahaula og því mikilvægt að taka þessa sjúldinga til aðgerðar fyrr en síðar. Aðgerðirnar er bæði hægt að framkvæma opið með náraskurði eða með kviðsjá. Tiltölulega stór hluti aðgerðanna eru bráðaaðgerðir vegna sjálfhelduhauls og eru þá kviðsáraðgerðir og aðgerðir með neti síðri kostur. Margir kjósa í slíkum tilvikum að notast við Nyhus að- gerð (sjá kafla um endurtekin kviðslit) þar sem auðvelt er að kanna ástand garnarinnar áður en kviðslitinu er lokað. Þessari aðgerð er einnig hægt að beita í valað- gerðum (electiv op.) með eða á nets. Margir kjósa þó svokallaða McVay aðgerð en hún er ekki ósvipuð Shouldice aðgerðinni nema hvað saumað er dýpra í neðra blaðið þ.e. í svokallað Cooper's ligament (í stað fascia transversalis og nárabandsins). Með þessu móti er lærisganginum lokað. Hættan á endurteknu kviðsliti er minni eftir aðgerðir á lærishaulum en nárahaulum. Fylgikvillar kviðslitsaðgerða Helstu fylgikvillar skurðaðgerða eru sýndir í töflu I. Við fyrstu nárakviðslitsaðgerð eru alvarlegir fylgi- kvillar í aðgerðinni sjálfri sjaldséðir og skurðdauði nán- ast eingöngu bundinn við þá sem gangast undir bráða- aðgerðir vegna sjálflielduhaula þar sem drep verður á görn (mynd 9) [1]. Minniháttar blæðingar eru al- gengastar en ef farið er ógætilega eru stórar æðar, a./v. femoralis og a/v. epigastrica inf. slcammt undan. Fylgi- kvillar eru mun algengari í aðgerðum á endurteknum kviðslitum enda oft töluvert um samgróninga og líf- færafræðin ruglingslegri. Sama á við um stóra hliðlæga haula sem teygja sig niður í pung. Þeir geta Iegið upp að a./v. testiculare og vas deferens og verður því að fara varlega þegar haullinn er losaður frá sáðstrengnum [26]. Fylgikvillar eftir aðgerð eru hinsvegar algengari. Þeir geta verið í tengslum við svæfingu eða hryggdeyfingu en eru oftar af völdum sjálfrar skurðaðgerðarinnar [27]. Eldri karlar eiga oft erfitt með að kasta vatni fyrst eftir LÆKNANEMINN 40 1. tbl. 1997, 50. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.