Læknaneminn - 01.04.1997, Síða 53
INNGANGUR
Ofnæmi og astmi hefur farið vaxandi í hinum vest-
ræna heimi sl. 20 ár. Orsök þessarrar aukningar er
sennilega margþætt. Þó virðist sem aukning á
ofnæmisvökum í híbýlum nútímans geti haft veruleg
áhrif. Við eyðum æ meiri tíma innandyra og verðum
því meira fyrir þessum ofnæmisvökum. Auk þess fer
fjöldi gæludýra á heimilum vaxandi, og er nú svo
komið að um helmingur allra heimila er annað hvort
með hund eða kött nema hvort tveggja sé! Á árum
áður voru þessi dýr mest utandyra en alls ekki í stássto-
funni og sváfu ekki í rúmi eða á kodda eiganda síns eins
og nú tíðkast. Híbýli eru byggð til að spara orku og
þannig þéttari en áður, loftræsting er oft minni og
algengara er að leggja t.d. filt teppi í hólf og gólf en
áður tíðkaðist. Einnig er mun meira af innan-
stoklcsmunum, bólstruðum húsgögnum, gardínum og
bólcum í vistarverum okkar en áður þekktist. Allir þes-
sir þættir leiða til þess að dýrahárin geta safnast fyrir í
miklu magni og erfiðara verður að þrífa og ná þeim í
burtu. Mikill umgangur innandyra veldur því að
ofnæmisvakarnir frá dýrahárunum þyrlast upp og valda
meiri einkennum frá augum, nefi og lungum en ef þeir
lægju óáreittir í kyrrlátu herbergi.
Nú verður fjölbreytni gæludýr æ meiri t.d. naggrísir,
hamstur, kanínur og mýs. Dæmi eru til þess að þessi
dýr séu ekki einungis á heimilum, heldur einnig
skólastofum og leikskólum.
HVAÐA DÝR VALDA HELST OFNÆMI ?
Ofnæmi hefur verið lýst af flestum dýrategundum.
Þó er ofnæmi mun algengara af sumum dýrategundum
en öðrum. Ræður þar mest um hversu algeng dýrin eru
Unnur Steina Björnsdóttir sérfrœðingur í ojhœmissjúkfómum og
lyflœkningum, VtfilstaSasítala. og DavíS Gíslason yfirlaknir, sér-
frxSingur í ónamissjiíkdómum og lyfhekningum, VífilstaSaspítala.
Ofnæmi
íyrir dýmm
Unnur Steina Björnsdóttir og Davíð Gíslason
(t.d. kettir, hundar) og hversu sterkir ofnæmisvakar
þeirra eru (nagdýr, kettir).
I erlendum rannsóknum hefur lcomið í ljós að milli
5-10% einstaklinga eru með jákvæð húðpróf fyrir kött-
um eða hundum og að 15-30% sjúklinga með
ofnæmiskvef eru með jákvæð húðpróf. I þeim
rannsóknum er kattarofnæmi um tvisvar sinnum
algengara en hundaofnæmi. Atvinnusjúkdómar vegna
dýraofnæmis eru einnig vel þeklctir, t.d. hjá einstakl-
ingum sem vinna landbúnaðarstörf. Þó þar beri hæst
ofnæmi fyrir heymaurum á Islandi (t.d. Lepidoglyphus
destructor, þar sem 12 % bænda eru með jákvæð
húðpróf) er einnig þeklct ofnæmi fyrir kúm, sauðfé og
svínum. Ofnæmi fyrir nagdýrum er sérstaldega algengt
meðal rannsóknarfólks sem umgengst tilraunadýr t.d.
rottur og mýs á tilraunastofum. Tíðni nagdýraofnæmis
á íslandi er nánast óþelckt, en 15-30% allra sem vinna
slílc rannsóknarstörf eru næmir. Þar eru rottur algen-
gastar, síðan kanínur og svo naggrísir.
SJUKDOMSEINKENNI
Ofnœmiseinkenni árið um kring
Ofnæmisvakar frá dýrum eru í umhverfi okkar árið
umkring. Sjúklingar með ofnæmi fyrir dýrum þjást því
á öllum tímum árs. Þó verður áberandi aukning
einkenna á haustin og veturna þegar innivera okkar
eylcst og skólaganga hefst. Sem dæmi mætti taka dreng
sem skyndilega fær auknar nefstíflur og astmaköst í
september eftir einkennalausan tíma yfir sumar-
mánuðina. Læknirinn sem rannsakar hann kemst að
því að eftir að hann byrjaði aftur í skólanum, hengir
hann úlpuna sína á snaga við hliðina á snaga vinar síns
sem á kött. Auk þess sitja þeir félagar hlið við hlið. A
húðprófi kemur svo í ljós að sjúklingurinn er með
jákvæða svörun fyrir köttum.
Fnæs, dæs og hvœs
Einkenni um dýraofnæmi geta verið vægur kláði í
LÆKNANEMINN
51
1. tbl. 1997, 50. árg.