Iðjuþjálfinn - 2023, Blaðsíða 17

Iðjuþjálfinn - 2023, Blaðsíða 17
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 17 Áhrifaþættir á birtingu Hinn breiði birtingargrundvöllur vekur upp þær spurningar hvar iðjuþjálfar kjósa að birta og hvers vegna. Fjölmörg réttindi og hlunnindi þeirra sem starfa innan háskólasamfélagsins tengjast birtingum á viðurkenndum vettvangi. Í Matskerfi opinberra háskóla segir að við mat á tímaritsgreinum sé stuðst við tvo helstu gagnagrunna vísindatímarita, en þeir eru Web of Science (WoS) á vegum Clarivate og Scopus á vegum Elsevier https://www.hi.is/sites/default/files/brynjadis/matskerfi_ opinberra_haskola_2022.pdf. Auk þess er stuðst við finnska mats- og röðunarlistann fyrir akademísk verk Julkaisufoorumi (tsv.fi). Efst trjóna svokölluð ISI-tímarit sem gefa 20 stig. Þetta eru alþjóðleg vísindatímarit sem skráð eru í sérstaka gagna- grunna og með það háan áhrifastuðul (e. impact factor) að þau raðast í efstu 20% í sínum flokki. Dæmi um slíkt tímarit er Disability and Rehabilitation. Flest erlend iðjuþjálfatímarit svo sem SJOT og AJOT eru með áhrifastuðul og birtingar þar gefa 15 stig. Ritrýndar greinar í ýmsum íslenskum tímaritum, svo sem Tímariti hjúkrunarfræðinga, Tímariti um uppeldi og menntun og Tímariti félagsráðgjafa gefa 10 stig en ritrýndar greinar í Iðjuþjálfanum hafa hin síðustu ár eingöngu gefið 5 stig. Stjórn matskerfisins tekur ákvörðun um röðun íslenskra tímarita og er þá meðal annars stuðst við ofangreind viðmið og höfnunarhlutfall. Okkur er kunnugt um að fræðileg ritnefnd Iðjuþjálfafélagsins hafi um árabil gert athugasemdir við stigagjöf í Iðjuþjálfanum við fulltrúa matsnefndar um flokkun íslenskra tímarita en án árangurs. Það að birting á þeim vettvangi veitir einungis 5 stig kann að hafa dregið úr áhuga iðjuþjálfa á að birta þar. Þetta er eins konar vítahringur vegna þess að meðan svo lítið er birt af ritrýndum greinum þá hækkar stigagjöfin ekki. Greinar í Iðjuþjálfanum beinast að fagi og starfi hér á landi og ætla má að þeim skrifum sé sérstaklega ætlað að ná til kollega innan fagsins og nemenda líkt og þessari grein. Oftar en ekki kjósa iðjuþjálfar að birta á almennari vettvangi til að ná til fleiri lesenda og leggja sitt af mörkum í þverfræðilegu samhengi. Og líkt og segir að framan skrifa iðjuþjálfar í félagi við fólk með ólíkan fræðilegan bakgrunn, sem síðan hefur áhrif á það hvar er birt. Margar birtingar tengjast doktorsnámi iðjuþjálfa sem oft er í öðrum fræðigreinum. Þegar þetta er ritað hafa fjórir iðjuþjálfar lokið doktorsnámi að því að við best vitum. Þrír iðjuþjálfar stunda doktorsnám í fötlunarfræði og tvær þeirra kvenna sem lokið hafa doktorsnámi tengjast þeim vettvangi sterkum böndum þótt þær birti einnig á almennari vettvangi félags- heilbrigðis- og menntavísinda. Einn iðjuþjálfi stundar nú doktorsnám í lýðheilsuvísindum og annar í heilsu, færni og þátttöku. Að mati okkar sem þetta ritum skortir öflugt þverfræðilegt tímarit í heilbrigðis- og félagsvísindum hér á landi sem hefði tök á að ná til þess fjölbreytta hóps sem lætur sig heilbrigðis- og velferðarmál varða. Jafnframt er mikilvægt að hefja Iðjuþjálfann til vegs og virðingar og stuðla að því að ritrýndar greinar í tímaritinu verði metnar sem skyldi í fram- tíðinni. Í auknum mæli er gerð krafa um að rannsakendur birti fræðigreinar í opnum aðgangi og í mörgum tilvikum fylgir því verulegur kostnaður. Ef ritrýndar greinar í Iðjuþjálfanum yrðu betur metnar og áfram gjaldfrjálsar yrði mun álitlegra fyrir rannsakendur í iðjuþjálfunarfræðum að birta í tímaritinu. Þótt mikilvægt sé að miðla rannsóknarniðurstöðum til fræðasam- félaga ytra er einnig brýnt að fjalla um þær á íslensku, ekki síst í fagtímariti iðjuþjálfa. Slíkt gæti unnið fræðunum enn frekari sess og rótfestu í íslenskri tungu og samfélagi. Niðurlag Líkt og sagði í upphafi greinar var markmið okkar að kortleggja fræðastörf innan fagsins frá aldamótum. Þótt við reiknuðum með að úr miklu væri að moða kom fjöldi birtinga á óvart í ljósi þess að íslenskir iðjuþjálfar eru rétt um 400. Í fljótu bragði er ekki hægt að benda á tiltekin „göt“ eða svið þar sem rannsóknir vantar sárlega miðað við stöðu fags og fræða. Dreifingin er einnig áhugaverð að okkar mati. Við höfum allar komið að og látið okkur varða þróun fags og fræða í gegnum árin. Við héldum í þessa vegferð í því skyni að líta yfir farinn veg og svala eigin forvitni nú þegar tvær okkar hafa látið af störfum og styttist í starfslok hinnar þriðju. Við vonumst til að samantektin geti orðið starfandi og verðandi iðjuþjálfum gagnleg heimild í framtíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.