Iðjuþjálfinn - 2023, Blaðsíða 45

Iðjuþjálfinn - 2023, Blaðsíða 45
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 45 Alls konar starfsemi gerist innan og utan dagskrár og þátttaka í starfi Hugarafls hefur mesta þýðingu fyrir bata einstaklinga. Það er enginn skyldaður til að gera eitthvað sem hann treystir sér ekki til. Einstaklingar stjórna eigin hraða, hversu hægt eða hratt þau fara í sitt eigið bataferli. Hlutverk fagmanna og jafningja er að styðja við einstaklinga sem leita sér þjónustu en ekki stýra ferðinni. Hlutverk samtakanna er að bjóða upp á nægilega valkosti því í batafræðinni er litið svo á að einstaklingar séu jafn misjafnir og þeir eru margir og því ekki raunhæft að þeir fari allir sömu leið að batanum. Margir þurfa mikinn stuðning til að byrja með en þegar líður á bataferlið snýst það oft við og fólk vill fá að gefa af sér, nýta styrkleika sína og þá er mikilvægt að tækifærin séu næg. Hugarafl hefur líka markvisst veitt aðstandendum þeirra sem glíma við geðraskanir stuðning og hafa þeir vettvang innan samtakanna til þess skiptast á ráðum og reynslu. 12 með endurhæfingaráætlun sem ekki var gerð hjá Hugarafli. Flest taka mikinn þátt í gerð endurhæfingaráætlunar sinnar, eða yfir 9 af hverjum 10. Mynd 2. Ert þú með eða hefur þú verið með endurhæfingaráætlun? (n = 122) Í töflu 9 er þátttaka í gerð endurhæfingaráætlunar greind eftir því hvar hún var gerð. Hlutfallslega fleiri sem hafa endurhæfingaráætlun sem gerð var hjá Hugarafli tóku mjög eða frekar mikinn þátt í gerð í áætlun sinni. En vegna fárra einstaklinga í reitum var ekki hægt að framkvæma marktektarpróf til að skera úr um hvort munur á þátttöku í endurhæfingaráætlun væri marktækur eftir því hvar hún var gerð. Á mynd 3 kemur fram að 26% þátttakanda sem hafa enduhæfingaráætlun sem gerð var hjá Hugarafli hafa notað hana í öðru úrræði. Á móti hafa 68% þeirra sem eru með endurhæfingaráætlun frá öðrum aðila notað hana hjá Hugarafli. Tafla 9. Hversu mikinn eða lítinn þátt tókst þú í gerð endurhæfingaráætlunarinnar? 32% 20% 11% 37% 0% 15% 30% 45% 60% 75% Nei, ég hef ekki verið með endurhæfingaráætlun Já, endurhæfingaráætlun mín var gerð hjá öðrum aðila Já, endurhæfingaráætlun mín var bæði gerð hjá Hugarafli og öðrum aðila Já, endurhæfingaráætlun mín var gerð hjá Hugarafli Mjög mikinn Frekar mikinn Hvorki mikinn né lítinn Frekar lítinn Mjög lítinn Fjöldi svara Heild 55% 36% 8% 0% 1% 80 Enduhæfingarátlun var gerð hjá Hugarafli 69% 24% 7% 0% 0% 45 Hugarafli og öðrum aðila 62% 39% 0% 0% 0% 13 Öðrum aðila 23% 59% 14% 0% 5% 22 Gögn uppfylltu ekki forsendur marktektarprófs. Mjög / frekar mikinn þátt 91% 93% 100 % 82% 0% 25% 50% 75% 100% 91% 93% 100% 82% 0% 25% 50 75% 100% Endurhæfingaráætlun Ár ng r af þjón stunni Mynd 4. Hversu góð eða slæm var/er andleg líðan þín... Tæplega 50% svarenda, í þessu tilviki 70 manns, hafa fengið aðstoð við gerð endurhæfingaráætlunar hjá Hugarafli. Það er mikil pappírsvinna og ríkar skyldur við eftirfylgni. Við höfum lengi tekið eftir víða í kerfinu að tregðu gætir við að taka að sér þá ábyrgð að veita þjónustu við gerð endurhæfingaráætlana. Við gerum okkar besta til að aðstoða fólk við þetta og jafnframt veita stuðning í endurhæfingunni. Það er líka glórulaust að halda að fólk geti náð bata, eflt sig félagslega og andlega þegar það hefur ekki í sig og á. Við pressum heldur ekki mikið á fólk. Það fær hjá okkur valkosti, einstaklingar velja hvað geti hentað og við ræðum ekki endurhæfinguna í upphafi hennar. 14 þeirra væri mjög góð í dag, sem er mun hærra en prósentuhlutfallið sem mat andlega líðan sína mjög góða þegar fyrst var leitað til Hugarafls. Notað var parað t-próf til að kanna hvort munur á meðaltali á mælingu á andlegri líðan væri tölfræðilega marktækt betri í dag en þegar fyrst var leitað til Hugarafls og sýndu niðurstöður með 99% vissu að svo er (t(135) = 16,42, p < 0,001). Mikill meirihluta svarenda telur Hugarafl hafa aðstoðað sig mjög eða frekar mikið í að ná árangri í bataferli sínu, eða um 84%. Þá telja 14% svarenda Hugarafl hvorki hafa aðstoðað sig mikið né lítið. Tvö prósent þátttakanda telja Hugarafl hafa aðstoðað sig mjög lítið í bataferli sín . Mynd 4. Hversu góð eða slæm var/er andleg líðan þín … Tafla 11. Hversu mikið eða lítið finnst þér að Hugarafl hafi aðstoðað þig við að ná árangri í bataferli þínu? Þátttakendur sem greindu frá því að Hugarafl hefði aðstoðað þá mjög eða frekar mikið við að ná árangri í sínu bataferli (sjá töflu 11) voru spurðir að hvaða leyti Hugarafl hefði stutt þá. Eins og kemur fram í töflu 12 sögðu flest að Hugarafl hefði frætt þau um leiðir til að takast á við vanlíðan, eða 84% svarenda. Auk þess völdu 8 af hverjum 10 valmöguleikann að vera þeirra hjá Hugarafli hafi verið valdeflandi. Um 44% svarenda taldi að Hugarafl hefði eflt starfsgetu þeirra og möguleika á vinnumarkaði. Flestir þátttakendur völdu nokkra svarmöguleika og má því gera ráð fyrir að starf og þjónusta Hugarafls styðji notendur við að ná andlegum bata á fjölbreyttan hátt. Fjöldi Hlutfall svarenda Hlutfall Mjög mikið 59 51% Frekar mikið 38 33% Hvorki mikið né lítið 16 14% Frekar lítið 1 1% Mjög lítið 2 2% Fjöldi svara 116 100% Veit ekki / Vil ekki svara 9 Á ekki við 15 Alls 140 51% 33% 14% 1% 2%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.