Iðjuþjálfinn - 2023, Blaðsíða 41
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 41
áskorunum á eigin skinni og einstaklingur sem leitar þjónustu
kemur á eigin forsendum.
Jafningjastuðningur (e. peer support) er nýttur í starfi
Hugarafls og nú starfa hjá samtökunum þrír þjálfaðir jafn-
ingjastuðningsaðilar. Í jafningjastuðningi er virðing borin
fyrir reynslu þess sem þarf á stuðningi að halda. Þetta er ekki
meðferðarvinna heldur stuðningur sem oft er nýttur meðan
beðið er eftir aðstoð fagmanna. Hins vegar er oft nóg að fá
slíkan stuðning þar sem fólk finnur svo greinilega fyrir að það
sé ekki eitt og getur speglað sig í því sem jafningjastuðnings-
aðilinn deilir af sinni reynslu. Þessi stuðningur er gerður eftir
ákveðnum starfsreglum sem fylgja jafningjanálgun.
Hearing Voices Iceland var stofnað hjá Hugarafli 4. apríl 2019
að erlendri fyrirmynd og starfræktur hefur verið hópur sem er
vettvangur þeirra sem heyra raddir eða upplifa óhefðbundnar
skynjanir. Ekki er litið á raddir eða skynjanir sem sjúkdóm
heldur sem hluta af mannlegum fjölbreytileika. Það hefur
reynst notendum mjög mikilvægt að eiga traustan vettvang
til að ræða skynjanir, raddir eða sýnir með öðrum sem hafa
svipaða reynslu án sjúkdómastimplunar.
Hugarafl á tvo þjálfara í andlegu hjartahnoði (e. emotional
eCpr) sem byggir á tengslum í gegnum tilfinningar og hjartað.
Orð eru oft óþörf, nándin sem byggir á virðingu og jafningja-
grunni nýtist vel einstaklingum sem ganga í gegnum tilfinn-
ingalegt álag og stuðlar að „endurlífgun“. Einstaklingi er mætt
með nánd, samlíðan og samveru á jafningjagrunni. Andlegt
hjartahnoð er líka notað með hópum eða samfélögum sem
hafa gengið í gegnum áfall eða hamfarir.
Hugarafl á einn þjálfara í opnu samtali (e. open dialogue, OD)
sem er eini menntaði þjálfarinn á Íslandi og stundar nú fram-
haldsnám til að geta þjálfað aðra. OD er aðferð sem notuð
er með fjölskyldum sem hafa gengið í gegnum geðrænar
áskoranir með aðstandanda sínum og unnið er með opnu
samtali. Opið samtal felst í að allir innan fjölskyldunnar eigi
sögu og stuðlað er að sameiginlegri orðræðu um aðstæður
fjölskyldunnar. Engar ákvarðanir eru teknar um velferð
einstaklingsins án þess að viðkomandi sé viðstaddur fundinn.
Þeir fagaðilar sem starfa samkvæmt þessari aðferð eru hluti
af samtalinu og taka þátt í ferlinu með einstaklingnum og
fjölskyldunni, deila upplifunum sínum og eigin tilfinningum.
Fleiri verkefni og þróunarverkefni sem unnið er að í þessum
töluðu orðum mætti nefna en við látum staðar numið hér.
Rauði þráðurinn í öllum okkar verkefnum er að reynsla notenda
er efst á baugi og nýtt markvisst. Þróun er unnin af notendum
og sömuleiðis útfærsla. Þannig tryggjum við að geta nýtt
þá dýrmætu reynslu sem er að finna hjá einstaklingum og
aðstandendum sem hafa gengið í gegnum geðrænar áskor-
anir. Kerfið veit ekki betur, fagfólk veit ekki betur, en samstarf
aðila getur verið gæfuríkt ef farið er vel með og hugmyndir
ekki afbakaðar. Því miður eru margar hugmyndir sem hafa
komið frá notendum eins og til dæmis jafningjastuðningur
„innlimaðar“ í hefðbundið kerfi og aðlagaðar kerfinu til þess
að fagfólk geti hugsað sér að vinna eftir þeim. Þá er í raun
verið að leita í þekkinguna en „stofnanavæða“ hana. Það er
áhyggjuefni og við skorum á stefnumótandi aðila að láta það
ekki gerast. Að sama skapi er mikilvægt að nýta grasrót eins
og okkar til að efla nýsköpun og bæta þjónustu.
Þjónustukönnun Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands
Í september 2022 var gerð stór þjónustukönnun fyrir Hugarafl
á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Sú könnun
sýnir magnaðar niðurstöður sem sannarlega gefa okkur byr
inn í ókomna framtíð.
Niðurstöður
Alls 83% þeirra sem leita til Hugarafls segja að líðan þeirra hafi
verið slæm eða mjög slæm þegar fyrst var leitað til Hugarafls.
Þar af voru 42% sem glímdu við mjög alvarlega vanlíðan. Eftir
veruna í Hugarafli lækkar sú tala niður í 4% og einungis 15%
segja líðan sína slæma nú. 40% greindu frá því að starfsgeta
þeirra hefði aukist á tímabilinu. 90% notenda voru ánægð
með þjónustuna og 3% óánægð. 61% þátttakenda lýsti því að
þjónustan hefði farið fram út væntingum. Hér er aðeins stiklað
á stóru en það verður að segjast að hér er vísbending um að
Hugarafl nái mjög eftirtektarverðum árangri sem verður að
taka tillit til.