Iðjuþjálfinn - 2023, Side 47
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 47
Starfið mitt:
Eva Snæbjarnardóttir,
iðjuþjálfi.
Ég útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri vorið 2019. Hóf
þá störf á Hrafnistu Laugarási í nýrri sérhæfðri dagþjálfun
fyrir fólk með heilabilun og tók þátt í mótunarstarfi hennar.
Árið 2021 flutti ég aftur til Akureyrar á heimaslóðir og hóf
störf hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN).
Starf mitt hjá HSN Akureyri er tvíþætt. Annars vegar að fara
í heilsueflandi heimsóknir til einstaklinga 80 ára og eldri, hins
vegar ráðgjöf iðjuþjálfa við heilsugæslustöðina. Í því síðar-
nefnda felst að mestu leyti að fara í heimilisathuganir m.t.t.
hjálpartækjanotkunar, meta hvort þörf sé á þjónustu auk þess
að sinna byltuvörnum.
Heilsueflandi heimsóknir
Heilsueflandi heimsóknir hjá HSN eru að danskri fyrirmynd.
Upphaf heimsóknanna var á vegum Akureyrarbæjar og hófst
árið 2000. Þá var öllum 75 ára og eldri, sem ekki voru með
heimahjúkrun, boðin ein til tvær heimsóknir á ári. Árið 2015 flyst
verkefnið yfir til HSN með breyttu fyrirkomulagi þar sem öllum
80 ára og eldri, sem ekki eru með vikulega þjónustu, er boðin ein
heimsókn á ári. Starfssvæði heimaþjónustu HSN á Akureyri er
Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Svalbarðsströnd,
Grýtubakkahreppur, Grímsey og hluti af Þingeyjarsveit. Við
komum því víða við sem er ákaflega skemmtilegt og fjölbreytt.
Markhópurinn í ár er 623 einstaklingar og undanfarin ár hafa
um 65–70% einstaklinga þegið heimsókn.
Tilgangur heimsóknanna:
• Að hvetja og styrkja einstaklinga til að viðhalda
heil brigði, færni og sjálfstæði sem lengst.
• Að stuðla að öryggiskennd og vellíðan á eigin
heimili eins lengi og mögulegt er.
• Að veita upplýsingar um félagsstarf og
þjónustu sem í boði er.
• Að veita ráðgjöf og meta í samráði við íbúa
hvernig gengur að takast á við daglegt líf
miðað við aðstæður hvers og eins.
Núna eru tveir starfsmenn sem sinna heilsueflandi heim-
sóknum á Akureyri; iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari. Fyrirkomulag
heimsóknanna er þannig að allir einstaklingar á lista fá sent
bréf árlega með boði um heimsókn sér að kostnaðarlausu.
Stuttu síðar hringjum við og bjóðum heimsókn. Heimsóknin
er val og fólki er frjálst að afþakka boðið. Við notum viðtals-
ramma til að fá sem breiðasta mynd af þátttöku og aðstæðum
viðkomandi í daglegu lífi. Til að mynda er leitað upplýsinga
um ævisögu, eigin umsjá, störf, tómstundaiðju, heilsu og líðan
auk umhverfisþátta. Samtalið einkennist einnig af óformlegu
spjalli. Við skiljum eftir hina ýmsu fræðslubæklinga eftir
aðstæðum. Í hverri heimsókn fær fólk upplýsingabækling um
ýmsa þjónustu sem er í boði fyrir eldri einstaklinga á þjónustu-
svæðinu. Í fyrstu heimsókn afhendum við alltaf bækling
Slysavarnafélags Landsbjargar „Örugg efri ár“. Á hverju ári
er einnig ákveðið þema. Sem dæmi hefur verið þema um
hreyfingu á efri árum, um mikilvægi næringar og að vekja
athygli á vinaverkefni Rauða krossins. Þetta árið er byltu-
varnarþema. Að auki stendur fólki til boða að hafa samband
ef einhverjar spurningar vakna. Þó svo að heilsueflandi heim-
sóknir séu fyrsta stigs forvarnir þá leyfa þær einnig inngrip
sem er þá annars stigs og jafnvel þriðja stigs í einhverjum
tilvikum.
Það sem mér finnst skemmtilegt við þetta starf er hvað ég hitti
marga ólíka einstaklinga með mismunandi lífssögu, reynslu
og gildi. Markhópurinn hefur stækkað hægt og bítandi með
hverju árinu í takt við fjölgun eldri einstaklinga í samfélaginu. Í
ljósi þess að eldri einstaklingum fer fjölgandi tel ég mikilvægt
að forvarnarstarf, ekki síst hjá eldri einstaklingum, skapi sér
meiri og sterkari sess en raunin er nú á Íslandi.
Iðjuþjálfi hjá HSN Akureyri