Iðjuþjálfinn - 2023, Page 48
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 48
2.3. Breytingar eru óhjákvæmilegar og eitt af því fáa sem
við getum gengið að sem vísu í lífinu, og þar með
í störfum okkar. Siðaregla 2.3 kveður á um skyldu
okkar til að auka þekkingu og nýta hana jafnóðum
í starfi. Það má með sanni segja að þegar kemur að
þekkingaröflun þá er um auðugan garð að gresja.
Sú sem ritar þessa hugleiðingu þarf ekki einu sinni
að færa sig úr stað til að auka þekkingu sína, því af
nógu er að taka á alnetinu. Það eru engar fréttir að
þekkingaröflun getur farið fram á margvíslegan hátt,
bæði á formlegan og minna formlegan. Yfir lengri eða
skemmri tíma, með öðrum eða í einrúmi. Því er hægt
að spyrja sig: Eftir hverju er ég að bíða þegar kemur
að því að ég auki þekkingu mína? Hvað hindrar mig
í að rækja þessa skyldu mína – sjálfri/sjálfum mér,
vinnustað og fagi mínu til framdráttar? Hvað get ég
gert til að komast yfir þessar hindranir?
Eitt af því sem við höfum tileinkað okkur í iðjuþjálfa-
námi er að líta gagnrýnum augum á hlutina og full
þörf er á því í vali úr öllum þeim aragrúa tækifæra sem
okkur bjóðast þegar kemur að öflun nýrrar þekkingar.
Hver sem er getur titlað sig sem sérfræðing í hinu eða
þessu og oft eru hlutir settir fram á sannfærandi hátt,
en þegar betur er að gáð er lítið eða ekkert að baki því
sem haldið er fram og verið er að selja okkur.
Eitt er að afla sér nýrrar þekkingar og annað að nýta
hana. Sjálfsagt hafa einhver okkar gerst sek um að nýta
ekki eitthvað sem við höfum lært – en er það ekki bara
mannlegt og eitthvað sem getur átt sér sanngjarnar
skýringar? Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.
Að lokum eru hér vísdómsorð frá Margaret Fuller: Ef
þú býrð yfir þekkingu, leyfðu öðrum að tendra kertin
sín í henni.
F.h. Siðanefndar Iðjuþjálfafélags Íslands
Petrea Guðný Sigurðardóttir.
Siðareglur Iðjuþjálfafélagsins skiptast í fjóra kafla og eru nokkrar greinar undir
hverjum þeirra. Hver kafli fjallar um ákveðið efni og hefur sína yfirskrift.
Iðjuþjálfi eykur þekkingu sína og nýtir sér
nýfengna þekkingu jafnóðum í starfi
Í námskeiðinu Fræðileg skrif og gagnreynt starf, sem kennt er á þriðja námsári í iðjuþjálfunarfræði, unnu nemendur
fræðilega samantekt um efni að eigin vali.
Samantektin flokkaðist undir kortlagningaryfirlit og var unnið eftir vinnulagi Arksey og O‘Malley (2005). Til að kynna
niðurstöður sínar útbjuggu nemendur síðan veggspjöld sem við deilum hér með ykkur. Viðfangsefni þeirra eru fjölbreytt
og eiga án efa erindi til starfandi iðjuþjálfa.
Hér á eftir koma kynningarspjöld nemanna frá námskeiðinu.
Við vonum að þið hafið gagn og gaman af.
Linda Björk Ólafsdóttir
umsjónarkennari námskeiðsins
Fræðileg skrif og gagnreynt starf vorið 2023.
Verkefni nemenda í iðjuþjálfunarfræði:
Frá siðanefnd: