Úrval - 01.10.1967, Side 14

Úrval - 01.10.1967, Side 14
12 World), mun líkjast Disneylandi, en verða nokkrum sinnum stærri og enn stórkostlegri. Það er gert ráð fyrir, að hann verði opnaður árið 1970. Við hliðina á honum verður einkaflugvöllur, fyrir þotur, fjöld- inn allur af bílahótelum (motelum), golfvöllum, tennisvöllum og alls konar aðstaða til vatnaíþrótta. „Borg framtíðarinnar“, sem bera skal heitið EPCOT (experimental prototype community of tomorrow), skal svo byrja að reisa, eftir að að- algarðurinn er tilbúinn. Borgin mun verða reist í samvinnu við helztu fyrirtæki Bandaríkjanna. EPCOT mun verða sem hjól í laginu, og mun hjólásinn“ verða undir hvolf- þaki úr gleri. Þar verður um 50 ekru svæði að ræða, sem verður með mjög fullkominni loftræstingu og loftkælingu. Á svæði þessu verður 30 hæða gistihús og miðstöð fyrir alls kyns mót og fundi, verzlanir, leikhús, veitingahús og skrifstofur. Fólk mun ekki þurfa að ganga á milli ýmissa staða á svæði þessu, heldur mun það verða flutt á milli þeirra á „fólksflytjurum", líkt og þeim, sem nú er gert ráð fyrir í Disneylandi. Utan þessa 50 ekra svæðis munu svo taka við fjölbýlishúsahverfi og hverfi einbýlishúsa, umvafin græn- um gróðri. Roy segir svo um fram- kvæmd þessa: „Það kann að virð- ast kolvitlaus hugmynd að reisa borg framtíðarinnar á svæði, þar sem er ekkert annað en mýrlendi, fen og kýprestré. En minnizt þess, hvað gerðist í Disneylandi. Þegar við hófum framkvæmdir þar, var ekki um neina byggð að ræða þar, ÚRVAL aðeins appelsínuekrur. En nú e.r Anaþeim orðin stór borg.“ Nú er einnig byrjað að vinna að áætlunum um framkvæmd fleiri drauma Walts Disneys. Þar má helzt nefna íþrótta- og skemmtisvæði í Mineral King, sem er undurfagur dalur hátt uppi í High Sierrafjöll- unum, um 225 mílum norðaustur af Los Angeles. Samkvæmt áæltun þessari á að reisa þar Alpaþorp, og verða þar meðal annars 14 skíða- lyftur, 2 geysistór gistihús, 10 veit- ingahús og svæði fyrir ýmsar vetr- aríþróttir. Allar byggingarnar verða reistar á þeim stöðum og á þann hátt, að þær verði hluti af heild- armynd dalsins, en stingi ekki geysi- lega í stúf við náttúruna. Framkvæmd ýmissa fleiri áætl- ana Walts er nú í undirbúningi. En ef til vill er þó ein áætlun, sem verið hefur Walt kærust. Það er hinn nýi listaskóli, California Institute of the Arts. Hann hugsaði sér hann „samfélag listanna", sam- safn skóla fyrir allar listgreinar, bæði skapandi og túlkandi. Þar átti ungt fólk ekki aðeins að fá tækifæri til þess að leggja stund á málara- list, tónlist, dans og aðrar listir, heldur átti því að veitast þar tæki- færi til þess að blanda geði hvert við annað í andrúmslofti, sem verða skyldi gegnsýrt af sköpunargleði og fullvissunni um tengsl og skyldleika hinna ýmsu listgreina. í skóla þess- um átti fremur að leggja áherzlu á þroska hæfileikanna heldur en „akademiska" yfirburði. Walt gaf 38 skógivaxnar ekrur, sem reisa skal listastofnun þessa á. Þær eru hluti af landi búgarðsins „Gullna
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.