Úrval - 01.10.1967, Blaðsíða 96

Úrval - 01.10.1967, Blaðsíða 96
94 ÚRVAL „Mér er illa við að sleppa honum“, sagði Hvirfilbylur, þegar hesturinn fór að þreytast. „Þetta er góður hestur.“ „Já, en þú hefur samt ástæðu til þess að aumkva Indíánann, sem fær hann.“ Hvirfilbylur glotti. Hann vissi, að „Hrekk“ var meinilla við alla ókunnuga og að klárinn lét þá finna það, svo að ekki varð um villzt. Þeir slepptu honum. Síðan riðu þeir mílu vegar í viðbót og stönzuðu svo sem snöggvast til þess að loía hestunum að kasta mæð- inni og litu þá um öxl. Þeir sáu Indíánana ná „Hrekk“ og snara hann. Einn af Indíánunum sveifl- aði sér á bak stóðhestinum, sem þeytti þessum nýja reiðmanni sam- stundis af sér í glæsilegum boga. Hann þaut út í loftið, eins og honum hefði verið skotið úr slöngvivél, kom beint niður á hausinn og lá síðan alveg grafkyrr. „Hálsbrotnaði!" hrópaði Hvirfil- bylur lotningarfullri röddu. „Hann Hrekkur varð þá á undan okk- ur. Hann er þegar búinn að kála einum, en við engum.“ Indínánarnir athuguð sem snöggv- ast sinn fallna félaga, og síðan héldu þeir eftirförinni áfram. En nú breyttu þeir um aðferð. Þeir skiptu sér í þrjá flokka. Einn fylgdi beint á eftir þeim, en hægði svolítið á sér, svo að hinir hóparnir gætu komizt á hlið við þá félaga í eins konar tangarsókn. Ástæða þessa herbragðs varð augljós að nokkrum mínútum liðnum. Nú komu þeir að hæð, og þessi staðsetning Indíána- hópanna gerði það að verkum, að flóttamennirnir tveir urðu að ríða beint upp hæðina. Hvirfilbylur varð fyrri til að komast alla leið upp, og hann kippti svo ofsalega í tauminn, svo að hesturinn prjónaði. „Þeir hafa ginnt okkur í gildru“, sagði hann þungbúinn á svipinn. Bill keyrði hest sinn sporum alla leið upp á hæðina. En þegar þangað kom, tókst honum rétt með naum- indum að snarstöðva hestinn, því að hann hefði að öðrum kosti steypzt fram af háum hömrum. Þeir voru snarbrattir, og það voru 60 fet niður að á, sem rann fram með rótum hamranna. Bill stökk af baki til þess að róa órólegan hestinn. Hann horfði bæði til aust- urs og vesturs, en Indíánahóparnir, sem mynduðu eins konar fylkingar- arma beggja megin, komu í veg fyrir, að þeir gætu komizt undan með því að beygja til hliðar, og aðalhópur Indíánanna kom þeys- andi á eftir þeim beint upp brekk- una. Hvirfilbylur steig af baki, dró upp skammbyssu sína og miðaði henni á höfuð hests síns. „Það er víst bezt fyrir okkur að skjóta hest- ana og nota skrokkana fyrir vígi“, sagði hann. „Það veitir okkur dá- lítinn frest.“ En Bill gerði sér grein fyrir því, að slíkt mundi aðeins reynast gálgafrestur, þar til skotfærin þryti. „Gerðu þetta ekki!“ sagði hann hvasslega. „Við höfum þörf fyrir hestana. Við förum fram af hömr- unum.“ „Fram af hömrunum? Ertu vit- laus? Við mundum hálsbrotna.“ „Það kann að enda þannig, en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.