Úrval - 01.10.1967, Blaðsíða 120
118
ÚRVAL
eyju. Þaðan þurftu þeir svo að
fara stutta ferð í lest og ganga svo
spottakorn, þangað til þeir kæmu til
fangabúðanna, sem þeir áttu að
fara í. Veita átti föngunum mat og
nauðsynlega læknismeðferð. Gerð-
ar höfðu verið áætlanir um nægi-
lega marga áningarstaði, svo að
engir fangar yrðu að ganga of lengi
í einu, enda átti að flytja fjórðung
fanganna á vörubílum til San Fern-
ando. í áætluninni, sem 14. hernum
var falið að framkvæma, var einnig
fyrirskipun frá Homma hershöfð-
ingja til yfirmanna hinna ýmsu her-
deilda, og samkvæmt henni skyldi
meðhöndla fangana „á vinsamlegan
hátt.“
Skipulagning og flutningur þess-
ara 78.000 Filippseyinga og Banda-
ríkjamanna var flókið í framkvæmd.
En það var að kenna örlagaþrungn-
um mistökum, að þetta breyttist í
hryllilega martröð.
Fyrsta orsökin var rangt mat
Japana á því, hversu margir yrðu
teknir til fanga á Bataan. Hin
mikla sókn Japana hófst föstudag-
inn langa og á skírdagskvöld höfðu
Japanir einmitt reynt að áætla þá
tölu, en hún hafði verið 50% of
lág, þ. e. áætlunin um handtöku og
meðhöndlun fanganna grundvall-
aðist á 40.000 föngum en ekki 78.000.
Onnur orsökin var sú, að Japanir
höfðu ekki hugmynd um, hversu
illa menn Kings voru á sig komnir.
. Þriðja orsölt þessara mistaka var
rökrétt afleiðing þessarar orsakar.
Homma hafði. haldið áfram stöðug-
um árásum á setuliðið á Bataan-
skaga um þriggja mánaða skeið án
árangurs, og því hélt hann, að
menn Kings væru sæmilega á sig
komnir líkamlega. Hann gerði ráð
fyrir því, að það tæki allan apríl-
mánuð að vinna sigur á þeim og
þannig mundi yfirmönnum hersveita
hans veitast tækifæri til þess að
útnefna fangaverði, velja áningar-
og matgjafarstaði og koma þar fyrir
nauðsynlegum birgðum og gera enn
fremur nauðsynlegar ráðstafanir,
hvað snerti lyf og hjúkrun.
En Bataan féll eftir tæplega einn-
ar viku orustu. Nú þurftu Japanir
skyndilega að fæða og sjá fyrir
öðrum þörfum helmingi fleiri fanga
en þeir álitu, að þeir mundu hand-
taka þrem vikum síðar. Og öllum
þessum föngum varð að koma burt
frá Bataan. Þar að auki var mikill
hluti fanganna of máttfarinn til þess
a-ð komast burt frá Bataan fót-
gangandi.
14. herinn japanska skorti sjálf-
um mat. Japönsku hermennirnir
höfðu aðeins fepgið hálfan matar-
skammt síðan í miðjum febrúar-
mánuði. Homma skorti líka flutn-
ingatæki, eldsneyti, lyf og hjúkr-
unargögn ,alls konar tæki og starfs-
fólk.
Og ýmsar aðrar aðstæður áttu
einnig sinn þátt í þeim harmleik,
sem á eftir fór. Lífið í japanska
hernum einkennist af hörku og
ruddaskap. Líkamlegar refsingar eru
daglegt brauð og oft gerræðislegar.
Hermennirnir endurspegla það
þjóðfélag valdbeitingarinnar, sem ól
þá, og því þoldu þeir líkamlegar
refsingar án þess að láta sér bregða.
Og þeir beittu sömu harðýðginni
við þá, sem voru þeim undirgefnir,