Úrval - 01.12.1969, Side 92

Úrval - 01.12.1969, Side 92
90 ÚRVAL að hann gæti tekið til bragðs til þess að hrinda fyrjrætlun sinni í framkvæmd. Hann hafði ákveðið að missa ekki móðinn, þótt hann væri vonsvikinn vegna hinnar hæðnis- legu neitunar ungmunksins. Pepino áleit, að hann væri í raun- inni mjög heppinn drengur saman- borið við marga aðra, þrátt fyrir þær sorgir, sem höfðu heimsótt hann svo snemma ævinnar. Hann hafði sem sé ekki einungis hlotið arf, sem gerði honum það fært að afla sér lífsviðurværis, heldur hafði honum einnig verið gefin lífsregla til þess að lifa eftir. í>að kjörorð fékk hann að gjöf ásamt súkkulaði- pökkum, jórturgúmi, sápu og öðr- um dásamlegum hlutum. Það var bandarískur undirliðþjálfi sem hafði gefið Pepino litla þetta allt saman, meðan hann dvaldi í herbúðum ná- lægt Assisi um sex mánaða skeið. Og í augum Pepinos hafði þessi bandaríski hermaður orðið að hetju og eins konar hálfguði. Hann hét Francis Xavier O'Halloran, og hann hafði sagt við Pepíno litla, áður en hann hvarf á braut fyrir fullt og allt: „Ef þú vilt komast áfram í heiminum, drengur minn, máttu al- drei láta „nei“ stöðva þig. Þú mátt ekki gefast upp fyrir neii. Skilurðu mig?“ Og Pepino hafði lifað eftir þessu góða ráði æ síðan. Honum fannst, að það léki reynd- ar enginn vafi á því, hvað næst skyldi til bragðs taka. En samt hélt hann fyrst á fund síns góða vinar og ráðgjafa, Föður Damico, til þess að fá réttmæti sannfæringar sinnar staðfesta. Faðir Damico var breiðleitur mað- ur með glampandi augu og axlir, sem voru líkt og skapaðar til þess að bera allar þær byrðar, sem sókn- arbörn hans vörpuðu yfir hann. Þegar hann hafði hlustað á frásögn Pepinos, sagði hann: „Þú hefur rétt til þess að fara beint til klausturs- ábótans og biðja hann sjálfan þess- arar bónar, því að hann hefur loka- vald til þess að verða við henni eða neita henni.“ Þessi hvatningarorð hans voru mælt í algeri einlægni. Það lá ekk- ert annað að baki þeim. En á hinn bóginn grét hann það ekki, að ábót- inn fengi þannig áþreifanlega sönn- un um hina hreinu, einföldu trú, því að hann áleit, að sá mikli mað- ur hefði helzt til mikinn áhuga á að nota dómkirkjuna og grafhvelf- inguna til þess að draga að sæg skemmtiferðamanna. Faðir Damico gat ekki sklið, hvers vegna barnið gæti ekki fengið þessa ósk sína upp- fyllta. En það var auðvitað ekki hans að taka neina ákvörðun í þessu máli. Honum lék þó forvitni á því að frétta um viðbrögð ábótans, þót.t hann áliti, að hann gæti vel getið sér til, hvers þau yrðu. Auðvitað skýrði hann Pepino litla alls ekkert frá sínum slæma grun, en kallaði bara á eftir honum, þeg- ar hann gekk út: „Og komist litla asnan ekki niður stigann, sem ligg- ur úr dómkirkjunni niður í graf- hvelfinguna, þá er til annar inn- gangur í grafhvelfinguna neðan frá, sko, í gegnum gömlu kirkjxma. Að vísu var honum lokað með múr- steinum fyrir heilli öld, en það væri hægt að opna hann aftur. Þú getur minnt ábótann á hann, þegar þú
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.