Úrval - 01.12.1969, Side 118

Úrval - 01.12.1969, Side 118
116 ÚRVAL leyti. Þeir voru dreifðir um stórt svæði, og ég þurfti að sinna þeim vel og lengi vikunum saman. Ætlazt var til þess, að vandvirkur læknir liti á hvern sjúkling a.m.k. einu sinni á dag og reyndar nokkr- um sinnum á dag, meðan sjúkling- urinn var í mestri hættu. Þá var álitið, að það ætti að þvo sjúklingn- um með köldum svampi, meðan hit- inn var mestur og sjúklingurinn var með óráði. Það var ekki um neinar lærðar hjúkrunarkonur að ræða, og því var það hlutverk lækn- isins að gera þetta. Tvær klukku- stundir virðast lengi að líða, þegar verið er að þvo sjúklingi, sem er haldinn óráði, einkum hafi maður ekki fengið neinn svefn síðustu 6 daga nema blund við og við í óþægi- legum hestvagni. í lok þessa hroða- lega erfiða sumars líkti ég svo eftir sjúklingum mínum og tók sjálfur taugaveikina. Alls konar meltingarsjúkdómar voru algengir á sumrin, einkum meðal barna. Þegar ég var ekki að baða taugaveikisjúklinga, var ég því að gefa smábörnum stólpípu. Ég er viss um, að slíkt bjargaði lífi margra barna. Þá var ekki um að ræða neinn ís. Hreinlætið var af mjög skornum skammti, og óvíða voru skordýranet fyrir gluggum. Þá vissi fólk ekki eins mikið um rétt ungbarnaeldi og það gerir nú, og ofsafenginn magakrampi var þá miklu algengari meðal ungbarna. Mörg börn dóu úr honum. Ég varpaði því jafnan öllu frá mér, þegar mér barst sú fregn, að barn hefði fengið magakrampa, og flýtti mér á vettvang. Ég hef fram- kvæmt margs konar aðgerðir síðar, þar sem um líf eða dauða hefur ver- ið að tefla. En ekkert veitir mér samt eins mikla ánægju og minn- ingarnar um baráttuna fyrir lífi þessara magaveiku barna. Unaðs- legt var að sjá slakna á hinum sam- andregnu limum og sjá höfuðið lyfta sér af svæflinum. Það var unaðslegt að sjá nýtt líf færast í augu móð- urinnar og líta bros hennar. Slíkt er eitt af því dýrmætasta, sem lífið hefur fært mér. Flestum litlu sjúk- lingunum mínum batnaði, þótt börn- in, sem starfsfélagar mínir gáfu deyfandi lyf, dæju. Og það komst brátt í almæli, að þessi „ungi lækn- ir gefst ekki upp við þau.“ DALUR SKUGGANNA Aður fyrr dvöldum við læknarnir hjá sjúklingum okkar, þegar að dauðastundinni kom. Við sáum til þess, að þeir þjáðust ekki. Ég hef setið við dánarbeð margra sjúklinga, sem héldu fuliri rænu til hinztu stundar og töluðu um daginn og veginn og sofnuðu svo svefn- inum langa. Það var ekki um neinn ótta að ræða. Dapurlegustu minningarnar eru tengdar gömlum hjónum, sem höfðu búið saman langa ævi. Þau voru bæði með lungnabólgu. Ég dvaldi hjá gömlu konunni, er hún dó. Og svo fór ég fram til gamla mannsins. Ég sagði ekki neitt. „Er mamma dáin?“ spurði hann. Ég þurfti ekki að svara Hann lokaði augunum, krosslagði hendurnar á brjósti sér, og að stuttri stund liðinni var hann líka dáinn. Það er þýðingarlaust að spyrja mig nánar um merkingu þessa alls.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.