Úrval - 01.12.1969, Side 110

Úrval - 01.12.1969, Side 110
108 URVAL ég lærði mikinn hluta af „Líffæra- fræði“ Grays utanbókar, og þetta reyndist mér mikil hjálp, er ég var kominn í læknaskólann. Samkvæmt ráðum hans valdi ég Norðvesturháskólann nálægt Chi- cago, vegna þess að inntökuskilyrð- in þar voru tiltölulega ströng og þar var krafizt þriggja ára náms, sjö mánuði ár hvert, og meðal kenn- ara skólans voru nokkrir, sem voru í fremstu röð, hvað læknisfræðilega þekkingu snerti. Jaggard, sem var prófessor í fæð- ingarhjálp, hafði lag á því að fá okkur til þess að skynja alvöru þeirrar ábyrgðar, sem læknisstarfið lagði okkur á herðar.“ Hann sagði oft við okkur: „Hugsið alltaf til þess fyrst og fremst, hvaða ógagn með- höndlunin kunni að gera.“ Annað kjörorð hans var þetta: „Skoðið upplýs;ngar þær, sem sjúklingur- inn veitir ykkur, sem heilagt leynd- armál.“ Hann gaf okkur dæmi um þetta með því að setja blýant á skrifborð sitt. „Þið vitið um þessar upplýsingar .... það er ein persóna. Sjúklingur ykkar veit þetta líka,“ sagði hann svo og setti annan blý- ant við hlið hinum. „Þá eru komnir tveir. Þið segið eiginkonum ykkar frá þessu,“ bætti hann enn við og setti þriðja blýantinn við hliðina á hinum. „Og hve margir vita það nú?“ spurði hann svo. Nemandinn, sem spurningunni var beint að, sagði auðvitað, að nú væru það þrír, sem vissu um allar staðreyndir. ,,Nei,“ hrópaði læknirinn þá, „þeir eru 111.“ Barnsburður einn, sem fór fram í viðurvist nemandanna, endaði með andvana fæðingu. Jaggard sneri sér svo að bekknum og sagði alvarlegur í bragði: „Við ættum að íhuga þann möguleika, að hæfnisskortur okkar kann nú að hafa valdið því, að heim- urinn hefur misst af væntanlegum forseta.“ Þessi hátíðlegu orð hans missa kannske svolítið af áhrifamætti sín- um, þegar það er haft í huga, að hið andvana barn var stúlka. En við strákarnir vorum þá svo hrifnir af þessum orðum hans, að við sáum ekkert kímilegt við þau við þessar aðstæður. Allir kennararnir í læknadeild Norðvesturháskólans voru starfandi læknar að undanskilinni efnafræð- inni. í deildinni voru aðeins tveir kennarar, sem höfðu þar fullt starf. Það voru prófessorinn í efnafræði og húsvörðurinn. Kennslan í lækna- vísindalegum greinum var því af fremur skornum skammti, eins og við má búast. Við lærðum bara efni fyrirlestranna og kennslubókanna utan að. En þetta hafði sína kosti. Við lærðum undirstöðuatriðin í námsgreinunum mjög vel. Jaggard var alltaf að spyrja okkur í þaula Hann þjálfaði minni okkar svo miskunnarlaust, að ég gæti staðizt þetta próf enn þann dag í dag. Læknarnir, sem kenndu okkur, vissu líka, hvað hafði hagnýta þýðingu vegna daglegra starfa sinna, og þeir lögðu því alveg sérstaka áherzlu á allt slíkt. Þannig lærðum við mjög vel um byggingu barkans, svo að við þyrft- um ekki að líta í bækur til öryggis, ef við þyrftum að framkvæma barkaskurð vegna barnaveiki. Nár-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.