Úrval - 01.01.1971, Page 39
37
legum keðjuárekstri í mikilli haust-
þoku fyrir ári. Þegar hann kom nú
upp á lága hæð nálægt útaksturs-
braut númer 2, lenti hann í léttri
þoku, sem var í fyrstu vart meira
en allþétt mistur. Um klukkan 7.40
hafði mistur þetta þétzt og breytzt
í allþétta þoku. Bifreiðir, sem fóru
fram úr honum, hurfu strax í
dimman þokubakkann framundan.
Hann minntist stórslyssins, sem
orðið hafði á þessari leið fyrir ári,
og lækkaði hraðann niður í 30 míl-
ur og spennti öryggisbeltið fastar
um sig. Hann rýndi alltaf öðru
hverju í afturspegilinn til þess að
fylgjast með þeirri umferð, sem
kom á eftir honum. Og skyndilega
sá hann stóran, dökkan skugga
nálgast óðfluga aftur undan bif-
reiðinni. Það tók hann nokkrar
sekúndur að gera sér grein fyrir
því, að þetta var risavaxin vöru-
bifreið með frambyggðu stýrishúsi,
sem kom hratt á eftir honum, allt
of hratt.
Dr. Jaffee sparkaði fast í bensín-
gjafann til þess að reyna að kom-
ast undan vörubifreiðinni, en það
var um seinan. Það heyrðist hroða-
legur skellur, og allur afturendi
bifreiðar hans ýttist inn, þannig að
bifreiðin styttist næstum um 4 fet.
Bifreiðin þeyttist fram á við og til
vinstri og skall á stálvarnarstöng-
ina, sem lá eftir endilöngum þjóð-
veginum og skipti honum í tvennt,
og kastaðist svo aftur frá stöng-
inni. Síðan varð bifreiðin fyrir öðr-
um skell, og þá missti dr. Jaffee
meðvitundina.
Enginn veit með vissu, hvaða
vörubifreið (eða vörubifreiðir)
rakst á bifreið dr. Jaffee, en allar
líkur benda til þess, að risavaxinn
tankbíll, sem hlaðinn var propane-
gasi, hafi fyrst ekið aftan á bifreið
hans. Hann stanzaði um 100 fetum
handan bifreiðar tannlæknisins.
Afturhlutinn, þ. e. geymirinn, hafði
losnað að hálfu frá stýrishúsinu.
Hann vaggaði nú til og datt yfir á
hægri hliðina. (Lögreglan heldur
því fram, að þessi risavaxna flutn-
ingabifreið hafi verið ofhlaðin.
Heildarþyngd hennar, þ. e. með
farminum meðtöldum, var á við um
þyngd 28 fólksbifreiða, tæp 70.000
pund). Efst á ferhyrndum geymin-
um, sem lá nú reyndar á hliðinni,
myndaðist fljótlega örmjó rifa, og
út um hana streymdi svolítil gas-
buna. Propanegas, sem er geysilega
eldfimt, er þyngra en andrúmsloft-