Úrval - 01.01.1971, Síða 40
38
ÚRVAL
ið, svo að það streymdi niður á
við, þ. e. að yfirborði vegarins, en
eftir yfirborðinu tók bráðlega að
renna bensín úr rifnum bensín-
geymum bifreiða, sem lentu í þess-
um keðjuárekstri.
Milli klukkan 6.30 og 7.20 þenn-
an morgun hafði Harry Winkler
vegalögregluþjónn, sem átti að hafa
eftirlit með hraðbrautinni fyrir
norðan útakstursbraut nr. 2, farið
þrisvar um þennan vegarhluta og
ekki orðið var við neina þoku þar.
En klukkan 7.21 lenti hann í léttu,
lágu þokumistri þar. Hann hafði
talsamband við stöðina í Moores-
town og bað hana um að kveikja á
þokuvarúðarskiltunum. Þar var um
að ræða rafmagnsskilti með orðinu
„ÞOKA“. Einnig bað hann um, að
skipt yrði samtímis um hámarks-
hraðatakmörk og hann lækkaður
úr 60 mílum í 50, en unnt er að
gera slíkt með fjarstýringu.
Um klukkan 7.50 sama morgun
sendi umferðareftirlitsstöð í New
Brunswick út slysatilkynningu, sem
hann náði í talstöð sinni. Fregn
þessi hafði borizt eftirlitsstöðinni
frá vegaskattseftirlitsmanni við út-
akstursbraut nr. 2t en ökumaður
einn hafði tilkynnt honum um slys-
ið. Vegalögregluþjónninn ók norð-
ur eftir á neyðarhraða eða á allt
að 100 mílna hraða. En brátt ók
hann inn í þokubakka að nýju og
varð að hægja á sér.
Klukkan 7.55 sá Winkler vega-
lögregluþjónn, að grá þokan varð
appelsínugul, og hann vissi þá, að
hann var kominn á slysstaðinn.
Hann stökk út, virti allar aðstæður
fyrir sér í flýti og sendi síðan orð-
sendingu til umferðareftirlitsstöðv-
arinnar í New Brunswick með
hjálp talstöðvar sinnar: „Það er
propanegasflutningabifreið hérna
og“ hann taldi „einn, tveir, þrír,
fjórir, um fimm eða sex brennandi
bifreiðir, og ég þarfnast hjálpar!"
Nokkrum sekúndum eftir að orð-
sending Winklers barst til stöðvar-
innar, voru allmargir vegalögreglu-
þjónar, sem fengið höfðu þessa orð-
sendingu frá umferðareftirlitsstöð-
inni í gegnum talstöðvar sínar, þeg-
ar á leið til slysstaðarins. Sumir
komu langt að, jafnvel úr 50 mílna
fjarlægð. Björgunarsveitir og
brunaliðsmenn voru þá einnig lagð-
ir af stað frá Swedesboro, Mullica
Hill og nokkrum öðrum bæjum
þarna í nágrenninu. En þeir urðu
allir að aka hægt vegna þokunnar.
Á meðan lá tankbíllinn á hliðinni,
líkt og sprengja, þvert yfir ak-
brautirnar fyrir umferð til suðurs,
líkt og falin gildra, og keðjuárekst-
urinn hélt áfram að magnast og
margfaldast.
Ein af fyrstu bifreiðunum, sem
kom í gegnum þokubakkann, var
Chevrolet II, árgerð 1965, frá Rhode
Islandfylki. Ökumaðurinn var ung-
ur bílasali. Hann stanzaði annað-
hvort nógu tímanlega eða kann að
hafa rekizt á tankbílinn, sem lá á
hliðinni. Það veit enginn með vissu.
Á eftir komu svo aðrar bifreiðir,
hver á fætur annarri. Þær runnu
ískrandi á hrúguna með hemlana á
eða snerust til með ískrandi hjól-
barða, þangað til tíu bifreiðir voru
komnar þarna í eina bendu.