Úrval - 01.01.1971, Síða 41
NÍTJÁN KEÐJUÁREKSTRAR .. .
39
Á eftir Chevrolet II kom Mer-
cury, árgerð 1966. Henni ók ungur
maður. Með honum var ung kona
hans og foreldrar. Unga manninum
tókst að stanza í tæka tíð og hjálpa
gömlu hjónunum í áttina að marka-
stönginni á miðjum veginum. Af
einhverjum ástæðum fylgdi kona
hans ekki á eftir honum. Hann var
að leggja af stað að bifreiðinni aft-
ur til þess að ná í hana, þegar hann
sá sér til skelfingar, að risavaxin
vörubifreið nálgaðist og ók alveg
yfir bifreiðina, sem konan hans sat
enn í.
Það var líkt og köttur hefði
stokkið á mús. Það gaus upp svart-
ur reykjarmökkur, og á eftir hon-
um gulur eldslogi. Unga konan sat
rammföst í þessu stálbúri.
Frú George Bogardt frá Mineola
á Löngueyju hafði ekið með 35
mílna hraða eftir hægri akbraut-
inni, sem er ætluð þeim, sem vilja
aka hægt. En þá sá hún skyndilega
móta fyrir tankbílnum, sem lá
þarna á hliðinni framundan henni.
Frú Bogardt tókst að stanza í
tæka tíð. Skyndilega kom maður-
inn hennar auga á stafina, sem gat
að líta utan á risageymi tankbíls-
ins. ,,Þetta er gasflutningabifreið!"
hrópaði hann. „Við skulum stanza
og hlaupa burt eins og fætur toga.“
Þau flýttu sér út úr bifreiðinni og
hlunu í suður út í dimma þokuna.
Á hlaupunum heyrðu þau hvern
áreksturinn á fætur öðrum, en svo
hevrðu þau hljóð, sem yfirgnæfði
hlióð þessi. Þau heyrðu, að önnur
aflmikil risavöruflutningabifreið
var að nálgast. Það var há flutn-
ingabifreið með löngum palli, en á
honum voru þrjár risavaxnar dies-
elvélar, og vó hver þeirra 6 tonn.
(Heildarþungi þessarar vörubif-
reiðar og vagns, að meðtöldum
farmi, var yfir 50.000 pund).
Ökumaður vörubifreiðarinnar sá
fyrst aðeins „tvö lítil, rauð ljós“
framundan, sem urðu svo skyndi-
lega skærari. „Afturljós, býst ég
við,“ bar hann síðar fram við yfir-
heyrslur á vegum Bandaríska
flutningaöryggisráðsins, er hann
var spurður, hvers konar ljós hann
hefði haldið, að þetta væru. „Eg
steig eins fast á hemilsfetilinn og
ég gat. En þetta bar svo brátt að,
að ég sá aldrei bifreiðina. Ég rakst
bara á hana. Það var allt og sumt.“
Hann sagðist hafa ekið á 55—60
mílna hraða, en hann hefði „hægt
á sér“ niður í 35 mílna hraða í
þokunni.
Enginn veit, á hvaða bifreið vöru-
bifreið þessi rakst fyrst, en hún
geystist áfram og splundraði bif-
reiðahrúgunni í tvennt. Það heyrð-
ist holt hljóð og síðan hvellt brot-
hlióð í gleri. Framhluti vörubif-
reiðarinnar rann upp á Chevrolet
II og Mercury-bifreiðarnar. Lik
sölumannsins frá Rhode Islandfylki
og ungu konunnar hans fundust
síðar í hrúgunni, en þau voru svo
illa brunninn, að það var ekki hægt
að bekkja þau.
Ökumaður síðari vörubifreiðar-
innar og kona ein, sem hafði verið
farþegi hjá honum, köstuðust út úr
stýrishúsinu niður á veginn fram-
undan bifreiðinni. Þau lentu 25 fet-
um handan við bílahrúguna. Hann
hafði meiðzt, en samt greip hann