Úrval - 01.01.1971, Blaðsíða 42
40
ÚRVAL
konuna og bar hana hlaupandi út
af veginum til þess að komast sem
lengst frá tankbílnum.
Brátt byrjuðu gular eldtungur að
teygja sig upp úr reykjarmekkin-
um, og í þeim ofsahita, sem þarna
myndaðist, byrjuðu álplöturnar í
yfirbyggingu vörubifreiðarinnar að
bráðna.
Nú sást fólk koma hlaupandi úr
mörgum bílum, æpandi og grátandi.
Það hljóp fram og aftur í örvænt-
ingu og vissi ekki sitt rjúkandi
ráð. Einn eða tveir vörubifreiða-
stjórar, sem höfðu getað stöðvað
bifreiðir sínar, höfðu tekið sér stöðu
á akbrautunum og veifuðu peysum
og jökkum og reyndu að stöðva
bifreiðirnar, sem runnu fram hjá
eins og skuggar í þokunni. Öku-
maður á Valiant bifreið af árgerð
1966 stanzaði. Nokkrum augnablik-
um síðar lyftist afturendi bifreiðar
hans hátt upp í loftið, þegar lág
Jaguarsportbifreið stakkst aftur
undir hana. Svo kom þriðja vöru-
bifreiðin, sem var hlaðin lifandi
kjúklingum. Ökumaður hennar gat
ekki stanzað og rakst á kyrrstæðan
Oldsmobile, sem var nýkominn úr
sýningarsal. Oldsmobilebifreiðin
kastaðist áfram og rakst á Dart-
bifreið af árgerð 1969. Síðan köst-
uðust báðar bifreiðirnar inn í eld-
hafið. Ökumaður á Barracuda, ár-
gerð 1970, reyndi að komast hjá
því að aka á kjúklingavöruflutn-
ingabifreiðina og beygði yfir á
hægri akbrautina og rakst á Jagu-
arinn.
Winkler vegalögregluþjónn byrj-
aði nú með hjálp nokkurra annarra
að beina fólki bui’t frá propane-
gastankbílnum. Síðan reyndi hann
að ná til þeirra, sem voru klemmd-
ir inni í brennandi bifreiðunum, en
hann gat það ekki vegna eldsins.
Nokkrum spöl frá slysstaðnum
tókst ökumönnum þriggja vörubif-
reiða að stanza með því að stíga á
hemilsfetlana af öllu afli. Ökumað-
ur á Pontiac Tempest-bifreið, sem
hafði gulan húsvagn í eftirdragi,
stöðvaði bifreið sína varlega fyxúr
aftan sjöttu vörubifreiðina, sem
stóð þai-na með fullum ljósum og
einnig blikkandi neyðarljósi.
Skyndilega mátti heyra sjöundu
vörubifreiðina nálgast. Síðan heyrð-
ist ískrandi hemlahljóð. Svo kom
áreksturinn. Guli húsvagninn kast-
aðist hátt upp í loftið og lenti ofan
á fólksbifreiðinni. sem hann var
tengdur aftan í, og hún kastaðist
fram á við eins og fallbyssukúla og
sprakk blátt áfram í loft upp í einu
eldhafi.
Inni í bifreiðinni voru herra og
frá Gasper Matos, roskin hjón, sem
voru að fara til Floridafylkis með
allar sínar eigur í húsvagninum, en
þar ætluðu þau að setjast í helgan
stein og eyða elliárunum. Þau
klemmdust inni í bifreiðinni og
urðu eldinum að bráð.
Dr. Jaffee komst aftur til með-
vitundar og staulaðist út fyrir veg-
arbrúnina við bann hluta hrað-
brautarinnar. sem ætlaður var fvr-
ir umferð til norðurs. Hann staul-
aðist með erfiðismunum að málm-
hrúgunni, sem áður hafði verið
nýja bifreiðin hans. Hann leitaði í