Úrval - 01.01.1971, Page 49
ER VERIÐ AÐ SVIPTA NÚTÍMAMENN ...
47
rétti. í fyrrasumar var frú Tomlin
Brown, aðalbókavörður útibús frá
hreppsbókasafninu í DeKalbhrepp
í Georgiufylki, beðin um það af
manni frá Ríkisskattstofunni, að
halda skrá yfir „þá, sem fengju
lánaðar bækur um viss hernaðar-
leg- og undirróðursefni", t. d. bæk-
ur um sprengiefni eða ævisögur
byltingaforingjans Che Guevara.
,,Ég varð alveg bálvond," sagði frú
Brown. „Fólk, sem kemur inn í
bókasafnið mitt, mun ekki þurfa að
hafa áhyggjur af því, að einhver
muni kjafta því í „Stóra bróður“
(Ríkisvaldið. Þýð.), hvaða bóka-
safnsbækur það les.“ Ríkisskatt-
stofan neitaði því, að starfsmenn
hennar hefðu nokkurn tíma beðið
um að fá uppgefin nöfn þeirra, er
læsu „undirróðursefni eða bylting-
arkenndar bækur“. En bókaverðir
í Milwaukee, San Francisco og
Kansas City lýstu yfir því, að ým-
ist Ríkisskattstofan eða lögreglan
hefði beðið þá um sams konar upp-
lýsingar. Höfðu starfsmenn Ríkis-
skattstofunnar velt því fyrir sér,
hvort þeir væru þannig að svipta
einhverja rétti til þess að fá að eiga
einkalíf sitt í friði? „Sú hugsun
hvarflaði jafnvel aldrei að okkur,“
sagði einn starfsmaður Ríkisskatt-
stofunnar í Atlanta.
Listinn yfir slík óhæfuverk leng-
ist stöðugt. Það komst upp, að
Bandaríkjaher hélt skrá yfir þá
borgara og þau samtök, er væru
líklegust til þess að stofna til
óspekta (t. d. Joan Baez, dr. Benja-
min Spock, Landssamband fram-
farafélaga þeldökkra), auk hinnar
venjulegu skrár um hollustu og
breytni sérhvers hermanns, sem
hefur nokkru sinni þurft að afla
slíkra upplýsinga um í öryggis-
skyni, en þær æviskrár eru nú
orðnar 7 milljón talsins. Þar að
auki hefur Bandaríkjaher einnig í
fórum sínum slíkar skrár um alla
óbreytta borgara, sem hann hefur
í þjónustu sinni, og verktaka, sem
taka að sér verkefni fyrir herinn.
Smásölulánstraustsupplýsingaskrif-
stofan í Atlanta (The Retail Credit
Co.), sem fæst aðallega við að selja
atvinnuveitendum og vátryggingar-
félögum upplýsingar um einstakl-
inga, hefur aukið spjaldskrár sín-
ar svo geysilega, að þær innihalda
nú upplýsingar um 70 milljónir
einstaklinga. „Credit Index“ (Láns-
traustsupplýsingadeild) Hooper-
Holmesskrifstofunnar hf. hefur sér-
hæft sig í neikvæðum, þ. e. niðr-
andi upplýsingum og hefur upplýs-
ingar um 12 milljónir einstaklinga
í spjaldskrám sínum.
En jafnvei þessar risaspjaldskrár
kunna brátt að reynast heldur litl-
ar miðað við það, sem koma skal,
eins konar frumstæð byrjun. TRW-
Lánstraustsupplýsingar (TRW
Credit Data), tölvuundirdeild TRW
hf., sem hefur aðalbækistöðvar í
Anaheim í Kaliforníu, bætir 50.000
nýjum nöfnum í upplýsingaspjald-
skrár sínar í viku hverri við þau
40 milljón nöfn, sem þar er að
finna nú þegar. Og í Washington
hefur NASA (Geimrannsóknar-
stofnun Bandaríkjanna) veitt fyrir-
tækinu Honeywell hf. samning um
undirbúningsrannsóknir og athug-
un á því, hvort það muni reynast