Úrval - 01.01.1971, Síða 52
50
ÚRVAL
upplýsingaröflunartæki sín og upp-
lýsingarnar, sem aflað hefur verið,
vegna þess eins að slíkt er fyrir
hendi. Þar er um að ræða nokkurs
konar vítahring sjálfsréttlætingar-
innar. „Eftir því sem upplýsingarn-
ar hlaðast upp, virðist innihald
tölvuæviferilsskrár einstaklingsins
verða veigameira, og þeim, sem
notfærir sér þetta innihald, mun
þannig jafnframt finnast það vera
áreiðanlegra vegná efnismagnsins
og hinna ýtarlegu upplýsinga,"
skrifar prófessor Miller. „Upplýs-
ingar tölvuæviskrár virðast öðlast
þann eiginleika, að þær verða óaf-
máanlegar."
Hversu óafmáanlegt er þá inni-
hald hundruða hryllingssagna nú-
tímans, sem grundvallast á röngum
tölvuupplýsingum? Slík atvik hafa
varanleg neikvæð áhrif á allt líf
sumra fórnardýranna.
Leon Sanders, fertugur blaða-
maður, fékk klínt á sig því óórði
með hjálp tölvunnar árið 1964, að
það væri ekki hægt að treysta á
skilvísi hans. Þetta gerðist þegar
Lánstraustsupplýsingaskrifstofan í
Greater Shreveport í Louisiana-
fylki tilkynnti ranglega, að bifreið
hans hefði verið tekin af honum
vegna vangoldinna afborgana, og
hélt áfram að tilkynna þetta þrátt
fyrir þrjú mótmælabréf frá sjálf-
um bifreiðasalanum. Sanders flutti
svo frá Louisianafylki til Dallas í
Texas og þaðan til Waco og loks
þaðan til San Antonio. Og alls stað--
ar voru þessar röngu lánstrausts-
upplýsingar honum mikill fjötur
um fót. Svo þegar þifreiðasali einn
tók af Sanders bifreið, sem hann
var að borga upp, bara vegna þess
að hann hafði fengið þessar röngu
upplýsingar um, að bifreið hefði
verið tekin af honum í Greater
Shrevepört vegna vanskila, þá fór
Sanders í mál við hann, því að
hann hafði staðið í skilum. En bif-
reiðasalinn auglýsti drjúgum hjá
útvarpsstöð þeirri, sem Sanders
vann hjá. Og útvarpsstöðin sagði
Sanders upp starfinu. Sanders gafst
loks upp í baráttu þessari og flutt-
ist til smábæjarins Center í Texas-
fylki, þar sem hann hafði alizt upp.
„Eg á ekki í neinum vandræðum
hérna heima í Center," seg'ir hann.
„Fólk hérna hefur þekkt mig alla
ævi, og það trúir mér frekar en
einhverri lánstraustsupplýsinga-
skrifstofu.“
En þúsundir borgara eiga það nú
á hættu að verða fyrir miklum
óþægindum og auðmýkingu að
ósekju, jafnvel þótt þeir verði ekki
fyrir þeim stöðugu ofsóknum, sem
Sanders varð fyrir sér til mikils
tjóns. Einn handhafi lánstrausts-
korts, 38 ára gamall sállæknir í
Boston, hefur nýlokið baráttu, sem
hann hefur átt í við stórt láns-
traustskortafyrirtæki í 3 ár vegna
algerlega rangrar 3000 dollara
kröfu. Umboðsmenn fyrirtækis
þessa hringdu oft í lækninn, með-
an hann var að ræða við sjúklinga
í lækningastofu sinni. Fyrirtækið
sendi honum líka hótunarsímskeyti
og fjölmörg innheimtubréf. Sál-
læknirinn fékk dýran lögfræðing
sér til aðstoðar í máli þessu. En
þrátt fyrir það tók það lögfræðing
þennan átta mánuði að fá svar frá
lögfræðingi fyrirtækisins. Og jafn-