Úrval - 01.01.1971, Síða 86
84
TJRVAL
Margt
er skrítid
Tveir pólitískir andstæðingar
stóðu á götuhorni í þorpi einu. Fóru
þeijr í hár saman og rifust og
skömmuðust. Fjöldi fólks dreif að
til þess að hlusta á þá.
— Það eru til hundrað aðferðir
til þess að græða peninga, segir ann-
ar íbygginn, en það er aðeins ein
sem er heiðarleg.
— Og hver er hún? spurði hinn
og það hlakkaði í honum.
— Oh, sagði hinn, þetta vissi ég,
þú þekkir hana ekki.
—o—
Verkamaður nokkur gekk alltaf
sömu leið í vinnuna. Á leið hans
var bakarí. Og í hvert skipti, sem
hann gekk þar framhjá, sá hann að
bakarakerlingin sló sendisveininn í
framan með franskbrauði. Verka-
maðurinn lét sem hann sæi þetta
ekki, enda fannst honum, að þetta
kæmi honum ekki við. Þannig var
þetta í fimm mánuði, en þá sá hann
að kerling kastaði súkkulaðitertu í
andlit drengsins. Hann varð furðu
lostinn, stakk hausnum inn um op-
inn gluggann og spurði hvers vegna
hún gerði þetta.
—■ Hann á afmæli í dag, svaraði
konan.
Gamall og ríkur bóndi hafði verið
ekkjumaður í nokkur ár. Hann var
því marki brenndur að hann þoldi
ekki börn nálægt sér. Karl var
kvensamur vel og féll hann því fyr-
ir ráðskonu sinni, sem var ung og
aðlaðandi. Einn hængur var þó þar
á. Hún átti sjö ára gamlan strák,
hinn mesta óþekktaranga. Samt sem
áður fór svo, að karl giftist ráðs-
konunni. Nokkru eftir giftinguna
fór hún í kaupstaðinn og ætlaði að
vera nokkra daga. Þegar hún kom
aftur, spurði hún sjtrákinn sinn,
hvernig honum hefði fallið við nýja
pabbann sinn.
— Alveg ágætlega, svaraði strák-
ur. Við fórum út á vatn á hverjum
morgni á bát og hann lét mig synda
í land.
— Guð hjálpi mér, hrópaði móðir
hans, það er allt of löng leið fyrir
þig að synda.
— Það var ekki svo slæmt, sagði
stráksi. Mestu vandræðin voru að
komast úr pokanum.
—o—
Biskup nokkur var eitt sinn að tala
um siðferðisþrek og kom með þetta
dæmi:
— Tíu drengir sváfu í sömu stof-
unni. Einn þeirra féll á kné og baðst
fyrir áður en hann fór í rúmið, þótt
allir hinir níu gerðu gys að hom.m.
Það er siðferðisþrek! Getur nokkur
nefnt mér tilsvarandi dæmi?
—• Já, svaraði bláeygður hnokki
á aftasta bekk. — Tíu biskupar
sváfu í sömu stofu, og einn þeirra
sofnaði, án þess að lesa kvöldbæn-
irnar sínar....