Úrval - 01.01.1971, Síða 91
88
URVAL
MORÐ í MISSISSIPPI
89
anna“ og hinn fyrsti „Konunglegi
spekingur" þeirra.
„Kaeru Klanfélagar,“ hóf hann
máls, „við erum hér saman komnir
til þess að ræða um það, hvað við
eigum að gera í varnarskyni gegn
innrás negra og kommúnista í
Mississippifylki, sem mun hefjast
eftir nokkra daga. Ég er hér með
Konunglega framkvæmdaskipun.
Gjörið svo vel og hlustið vel á efni
hennar.“
Hann lyfti margra blaðsíðna
plaggi hátt á loft og hóf síðan lest-
urinn:
„I sumar mun óvinurinn hefja
lokasókn til þess að reyna að
tryggja sér endanlegan sigur í
Mississippifylki. Þungamiðja sókn-
arinnar mun beinast að þessu
tvennu: Annars vegar verða miklar
mótmælagöngur á götum úti, úti-
fundir og áróðursstarfsemi, sem
negrar munu hrinda af stað og
beinist að því að framkalla mót-
mæli hvítra manna gegn undir
róðri þessum og þar með götubar-
daga, sem leitt gætu til algerar
þjóðfélagslegrar ringulreiðar. Hins
vegar verður svo gefin út tilskipun
af hinum kommúnisku yfirvöldum,
S''-m hafa með höndum stjórn
landsins. í tilskipun þessari verður
því lýst yfir, að algert uppreisnar-
ástand ríki í fylkinu og því skuli
setja herlög þar, og þar á eftir mun
svo hefjast hertaka alríkisher-
manna í stórum.stíl. . . .“
Mennirnir hlustuðu af athygli á
orð Bowers og álitu sig vera ein-
angraðan hóp ættjarðarvina, hina
síðustu framverði varnarlínunnar
gegn þessu sfórkostlega samsæri,
Síðan lýsti Bowers herbrögðum
þeim, sem grípa skyldi til í varnar-
skyni gegn „innrás“ þessari. Á yfir-
borðinu áttu Klanfélagar að taka
höndum saman við lögregluna á
hinum ýmsu stöðum og aðra þá,
sem halda áttu uppi lögum og rétti,
og þykjast styðja slíka aðila. Svo
bætti hann við: „En í öllum til-
fellum verða einnig að vera til taks
aðrir hópar meðlima okkar, sem
halda sig utan við helztu óeirðar-
svæðin, vopnum búnir og tilbúnir
að láta til skarar skríða, hvenær og
hvar sem þurfa þykir. Þetta verða
að vera eitilharðir hópar, sem geta
fært sig leifturhratt stað úr stað og
eru reiðubúnir að beita skefjalausu
ofbeldi. Þetta verða að vera hópar,
sem geta gert tafarlausa árás og
horfið síðan samstundis að henni
lokinni."
Óvinurinn, sem Bowers talaði um,
var Ráð hinna sameinuðu félaga-
samtaka (COFO: Council of Feder-
ated Organizations), enda þótt hann
kallaði óvin þennan „kommúnisk-
an“ æ ofan í æ. Ráð þetta var stofn-
að árið 1963 af leiðtogum mann-
réttindahreyfingar negranna. Ráð
þetta er stutt af Kynþáttajafnréttis-
ráðinu (CORE: Congress of Racial
Equality), Landssambandi fram-
sóknar þeldökkra (NAACP: Nati-
onal Association for the Advance-
ment of Colored People) og nokkr-
um öðrum félagssamtökum.
Á árunum 1962 og 1963 hafði
þungamiðja mannréttindabarátt-
unnar flutzt til Mississippifylkis.
Og var lögð sífellt meiri áherzla á
að fá negra til þess að láta skrá-
setja sig sem fullgilda kjósendur.
(Færri en 24.000 af 400.000 kosn-
ingabærum negrum voru þá skráð-
ir á kjörskrá í fylkinu). Ráð hinna
sameinuðu félagasamtaka hélt bar-
áttu þessari áfram og var nú ein-
mitt að skipuleggja slíkt starf
hundruða ungra manna og kvenna,
sem vinna skyldu þar í fylkinu
sumarið 1964. í augum Bowers var
þar um ,,innrásarseggi“ að ræða.
„Við verðum að viða að okkur
vopnum og skotfærum,“ sagði Bow-
ers að lokum. „Við verðum að
þjálfa árásar og varnarflokka. Við
verðum að koma á laggirnar áróð-
ursstarfsemi og áróðurstækjum. Og
við verðum að efla alvarlegan,