Úrval - 01.01.1971, Blaðsíða 94
92
ÚRVAL
issippifylkis. Hann hélt því fram,
að svo mundi forsetinn kveðja þjóð-
varðlið fylkisins til starfa sem al-
ríkisherlið, sem stjórnin gæti síðan
skipað fyrir verkum að vild. Hann
hélt því fram, að þeir hvítir menn,
sem héldu fast við málstað sinn,
yrðu síðan fluttir burt úr fylkinu
með valdi og síðan yrði gervallt
fylkið fengið í hendur negrum og
hinum hvítu stuðningsmönnum
þeirra. Það var erfitt að kyngja
þessari sögu, en Klanfélagsmönnum
tókst það samt.
Bowers og aðrir félagsmenn
skipulögðu síðan fimm héraðs-
deildir í Laurel og næstu héruðum
snemma árs 1964. Báru þeir heitir
,,klavern“. í dagblöðunum birtust
nú fréttir um, að þúsundir ungra
manna og kvenna mundu flæða inn
í Mississippifvlki næsta sumar til
þess að taka þátt í herferð Ráðs
hinna sameinuðu félagasamtaka
negranna, er beindist að því að fá
negrana til þess að fá sig skráða á
kjörskrá. Einn af framámönnum
ráðsins sýndi þá miklu óvarkárni
að gorta af því, að þar yrði um
hvorki meira né minna en 30.000
manna starfslið að ræða. Þetta voru
miklar ýkiur. En ýkíur þessar
höfðu samt geysileg áhrif meðal
hvítra manna. og siálfboðaliðar
streymdu nú til Klanfélaganna til
þess að sverja þeim ævarandi holl-
ustueið.
..ÞÉR VERÐUR KÁLAГ!
Hvítu riddararnir unnu að því
að auka meðlimatölu sína og
beindu brátt þessari herferð sinni
norður í sveitahéruð Neshobahrepps
og síðan til bæjarins Meridian, sem
telur 53.000 íbúa, en þar hefur
hreppsstjórn Lauderdalehrepps að-
setur sitt. Ráð hinna sameinuðu fé-
lagasamtaka negranna hafði þegar
hafið starfsemi sína á þessum slóð-
um. Helzti starfsmaður ráðsins þar
var ungur maður frá New York-
borg, Michael Schwerner að nafni.
Mickey Schwerner var glaðleg-
ur, ungur maður, 24 ára að aldri.
Hann hafði flutzt til bæjarins þá
um veturinn ásamt Ritu eiginkonu
sinni. Þau höfðu sjálf breytt ófull-
komnu húsnæði á mörkum negra-
hverfis bæjarins í Félagsmiðstöð
Meridianbæjar. Þau þvoðu og mál-
uðu sjálf þessi 5 herbergi, sem Fé-
lagsmiðstöðin fékk þar til umráða.
Vinir þeirra höfðu lagt af mörkum
MORÐ í MISSISSlPPl
93
10.000 binda bókasafn, sem þau sjálfboðaliðar, að kenna negrum
komu á laggirnar í húsnæði þessu. lestur, skrift og reikning og fræða
Félagsmiðstöðin átti að verða bæki- einnig nemendur um baráttumál og
stöð fyrir skipulagningu „frelsis- markmið mannréttindahreyfingar-
skóla“, en í þeim skólum áttu há- innar.
skólastúdentar, sem voru jafnframt Schwerner hóf nú undirbúning