Úrval - 01.01.1971, Blaðsíða 97
MORÐ í MISSISSIPPI
95
menn mannréttindahreyfingarinnar
fyrirlestra um siði Mississippifylkis
og klæðnað fólks og framkomu þar
í fylki og kenndu sjálfboðaliðunum
margt gagnlegt um slíka hluti.
Einn þeirra komst til dæmis svo að
orði: „Það, sem getur verið álitið
ósköp saklaust í Norðurríkjunum,
t. d. það að leggja handlegginn
vinalega yfir axlir einhvers af öðr-
um kynþætti, getur verið álitið
ósiðlegt os jafnvel klámfengið suð-
ur í Mississippifylki.“ Sjálfboðalið-
arnir hlutu fræðslu um það, hvern-
ig þeir ættu að reyna að fá negr-
ana til þess að fá sig skráða á kjör-
skrá, og æfðu slíkar fortöluaðferðir
aftur og aftur.
„Þið verðið kannske drepnir,"
sagði James Forman, aðalritari
Samræmingarnefndar ofbeldisand-
vígra stúdenta (SNCC: Student
Nonviolent Coordinating Commit-
tee), við þá í aðvörunarrómi. Svip-
ur hans var alvarlegur, er hann
mælti þessi orð.
Hugsanleg átök voru sviðsett fyr-
ir sjálfboðaliðana. Einn hópur
stúdenta var látinn leika óvinveitta,
hvíta Mississippibúa. Áttu þeir að
ausa svívirðingum yfir hinn hóp-
inn og reyna á allan hátt að ögra
honum. Sá hópur átti að taka
þátt í mótmælagöngu, sem -átti
að vera farin til stuðnings
kjörskrárskráningu negranna.
(Leikurinn varð stundum svo eðli-
legur, að menn misstu stjórn á
skapi sínu og lentu í handalögmál-
um). Unga fólkinu var sýnt, hvern-
ig það ætti að verjast vatnsbunum
úr brunaslöngum. Átti það að leggj-
ast endilangt og verja vel augun.
Einnig var því sýnt, hvernig það
átti að draga sem mest úr meiðsl-
um af völdum fótasparks með því
að hnipra sig saman á jörðinni.
John Doar frá Mannréttindadeild
Dómsmálaráðuneytisins leit inn til
sjálfboðaliðanna til þess að vara þá
við: „Það er ekki um að ræða neitt
alríkislögreglulið í Mississippifylki,
sem geti verndað ykkur, ef þörf
krefur. Ég • mæli með því, að þið
horfizt í augu við þessa staðreynd
og hagið ykkur í samræmi við
hana.“
Fjöldi sjálfboðaliða reyndist ekki
nema þúsundum, heldur var aðeins
um 800 slíka að ræða. En samt
gerðu allir sér grein fyrir því, að
ástandið í Mississippi varð nú
hættulegra með hverjum deginum.
Og nú reiddu Klansamtökin til
höggs í fyrsta skipti.
Það högg var greitt aðfaranótt þ.
16. júní. Rúmlega 100 Klanfélagar
frá Neshoba og Lauderdalehrepp-
um höfðu safnazt saman í fim-
leikahúsi við tóman skóla um fjór-
um mílum fyrir austan Philadel-
phiu, aðsetursstað hreppstjórnar
Neshobahrepps. „Við ætlum að
ræða um Gyðingadrenginn, hann
Geithafur,“ sagði einn Klanfélag-
inn við annan. „Hann hefur verið
á einhverjum leynifundi með nigg-
urunum í Longdale."
Héraðið Longdale var byggt
negrum. f því var meþódistakirkj-
an Zionsfjall. Schwerner vildi fá
að nota hana fyrir miðstöð á veg-
um Ráðs hinna sameinuðu félags-
samtaka negranna, en safnaðar-
stjórnarmeðlimir höfðu enn ekki