Úrval - 01.01.1971, Side 100
98
ÚRVAL
TEKNIR FASTIR
TIL YFIRHEYRSLU
Eftir að Mickey Schwerner sneri
aftur til Meridian laugardaginn 20.
júní, sagði hann: „Ég ætla að fara
yfir til Longdale á morgun og
reyna að komast að einhverju í
máli þessu.“ Hann dvaldi um nótt-
ina í húsinu, sem hann bjó í ásamt
Andrew Goodman, tvítugum stúd-
ent, sem stundaði mannfræðinám
við Queensháskólann í New York-
borg. (Rita Schwerner hafði orðið
eftir norður í Ohiofylki og ætlaði
að dvelja þar áfram um stundar-
sakir). Goodman hafði verið einn
sjálfboðaliðanna, sem tekið höfðu
þátt í þjálfunarnámskeiðunum við
Oxfordkvennaháskólann. Hann var
einn þeirra sex sjálfboðaliða, sem
sendir höfðu verið suður til Meri-
dian að námskeiðinu loknu.
Þeir Schwerner, Goodman og
Chaney komu saman í aðalbæki-
stöðvum Ráðs hinna sameinuðu fé-
lagssamtaka negranna næsta morg-
un og kom þeim þá saman um að
fara í svolítið ferðalag. Schwerner
viðhafði venjulegar varúðarráð-
stafanir. Hann sagði einum starfs-
manninum á skrifstofunni, hvert
hann ætlaði og að hann byggist við
að koma aftur ekki síðar en klukk-
an 4 síðdegis. „Ef við verðum ekki
komnir aftur fyrir þann tíma,“
sagði hann, „skuluð þið fara að
leita okkar.“
Neshobahreppur, sem Longdale-
héraðið er í, telur 20.500 íbúa. Um
helmingur býr í Philadelphiu, að-
setursbæ hreppsstjórnarinnar, eða í
nánd við hann. Af íbúunum eru
aðeins 5500 svartir og 1000 eru
Choctaw-Indíánar. Áhrif mannrétt-
indabaráttunnar höfðu aldrei bor-
izt til þessa afskekkta svæðis. Og
sumir menn voru ákveðnir í því að
hindra, að þau bærust þangað
nokkurn tíma, þar á meðal lög-
reglustjórinn, Lawrence A. Rainey,
sem hafði boðið sig fram til þessa
starfs undir kjörorðinu: „Maðurinn,
sem getur ráðið við þær aðstæður,
sem kunna að skapast.“ Hann
þurfti ekki að segja meira.
Þegar þeir Schwerner, Goodman
og Chaney komu til Longdale,
stönzuðu þeir við Zionfjallskirkj-
una til þess að skoða rústirnar. Svo
fóru þeir að hitta Cornelius Steele
og konu hans. Steele sagði þeim,
hvað hann hefði séð og heyrt, áður
en þeim tókst að komast undan.
Schwerner spurði þá: „Ertu reiðu-
búinn að koma til aðalbækistöðva
Ráðs hinna sameinuðu félagasam-
taka á þirðjudaginn og gefa þar
skjalfestan, vottfestan vitnisburð
um atburð þennan? Við ætlum að
fara í mál við yfirvöld Neshoba-
hrepps vegna þessa.“ Steele lofaði
að gera það.
Þessir þrír liðsmenn mannrétt-
indahreyfingarinnar yfirheyrðu
einnig Cole hinn yngri, en andlit
hans var enn bólgið eftir barsmíð-
ar Klanfélaganna. Schwerner spurði
hann, hvort hann væri reiðubúinn
til þess að koma til Meridian með
Steele og gefa þar skjalfestan, vott-
fsetan vitnisburð um atburðinn.
..Mér líður ekki sem bezt,“ svaraði
Cole. „Ég geri það, ef ég treysti
mér til þess.“
Þeir Schwerner, Goodman og
Chaney lögðu nú af stað til Meri-