Úrval - 01.01.1971, Page 103
MORÐ í MISSISSIPPI
101
•delphiu í nokkra klukkutíma.
Einn rannsóknarlögreglumann-
anna bar fram þessa spurningu:
„En hvers vegna voru þeir Sch-
werner og Goodman settir inn,
fyrst það var bara Chaney einn,
sem gerðist sekur um of hraðan
akstur?“ Price varalögreglustjóri
svaraði spurningunni á þessa leið:
„Þeir sögðust hafa dvalið í Long-
dale þennan dag. Eg hélt, að þeir
hefðu kannske staðið í einhverjum
tengslum við kirkjubrunann þar.“
Price sagði, að hann hefði fylgt
bifreið þeirra eftir að bæjarmörk-
unum, er þeir höfðu verið látnir
lausir. „Þar sá ég þá síðast," sagði
hann rannsóknarlögreglumönnun-
um.
Þessar upplýsingar voru sendar
til Washington. Þegar ljóst var síð-
ari hluta dagsins, að yfirvöld þarna
suður frá gerðu enga skipulega til-
raun til þess að finna ungu menn-
ina, ákvað Robert F. Kennedy
dómsmálaráðherra, að nú væri
kominn tími til þess, að ríkisstjórn-
in blandaði sér í málið og skoðaði
þetta fyrst um sinn sem brottnám.
Klukkan var tuttugu mínútur geng-
in í sjö, þegar hann tók þá ákvörð-
un. Hópur alríkisrannsóknarlög-
reglumanna frá New Orlean kom
til Meridian á þriðjudagsmorgni og
hélt þaðan beint til Philadelphiu í
leit að slóð, sem rekja mætti. Þeir
voru fyrstir 150 rannsóknarlög-
reglumanna, sem hófu leitina að
unffu mönnunum næstu daga.
Skömmu eftir hádegi sama dag
fundu alríkisrannsóknarlögreglu-
mennirnir stationbílinn frá aðal-
bækistöðvum Ráðs hinna samein-
uðu félagasamtaka. Hann stóð inn
á milli runna niðri við Bogue
Chittofenið, um 13 mílum fyrir
norðaustan Philadelphiu. Það var
ekkert eftir af honum nema sviðin
grindin. Hitt var ein öskuhrúga.
Um sama leyti og Johnson forseti
var að fá skýrslu um fund þenn-
an, voru dyrnar að forsetaskrif-
stofunni opnaðar til þess að hleypa
foreldrum Andrews Godmans og
föður Michaels Schwerners inn til
fprsetans. Þau höfðu komið fljúg-
andi frá New Yorkborg til þess að
fara fram á það við forsetann, að
hann sæi til þess, að lögð yrði
geysileg áherzla á að reyna að finna
syni þeirra og James Chanye. For-
setinn færði þeim nú þessar ógn-
vænlegu fréttir. Hann skýrði þeim
frá því, að fundizt hefði sviðin
grindin af bifreiðinni, sem ungu
mennirnir höfðu verið í, en enn
væri ekkert vitað um örlög þeirra.
Þau töluðu við forsetann í 20 mín-
útur, og hann fullvissaði þau um,
að stjórnin mundi neyta allra
þragða til þess að reyna að leysa
mál þetta.
Nú hófst mjög víðtæk leit í Bo-
gue Chittofeninu og næsta nágrenni
þess. Hundrað sjóliðar frá nálægri
flotaflugstöð voru fengnir til að-
stoðar við leitina. Brátt jókst tala
þeirra upp í 400 hundruð. Þeir unnu
á vöktum ásamt fjölmörgum alrík-
isrannsóknarlögreglumönnum og
mönnum frá vegaöryggiseftirliti
Mississippifylkis. Mennirnir gengu
næstum hlið við hlið um skógana
og óðu um fenið og leituðu vand-
lega í gruggugu vatninu. Þeir leit-
uðu í fjölda brunna, er voru ekki