Úrval - 01.01.1971, Qupperneq 104
102
ÚRVAL
lengur í notkun, og á eyðibílum og
í yfirgefnum húsum. Rannsóknar-
lögreglumenn leituðu einnig í þyrl-
um, sem flugu fram og aftur yfir
allt þetta svæði. Fiski- og veiði-
dýranefnd Mississippifylkis lánaði
fjóra báta, og var siglt á þeim fram
og aftur á Perluá og botn hennar
slæddur. En hver dagurinn af öðr-
um leið og það fannst hvorki tang-
ur né tetur, er leitt gæti til þess,
að mennirnir fyndust.
Samtímis leitinni héldu alríkis-
rannsóknarlögreglumenn áfram að
yfirheyra hvern þann í Noshoba-
hrepp, er gæti hugsanlega veitt ein-
hverjar frekari upplýsingar um
það, sem gerzt hafði þetta sunnu-
dagskvöld eða sunnudagsnótt. „Fólk
var mjög þegjandalegt þessa fyrstu
daga,“ segir einn rannsóknarlög-
reglumannanna. „Fólk var hrætt
við hefndarráðstafanir, ef það
levsti frá skjóðunni." Hvítt fólk
var hrætt við að iáta sjá sig opin-
berlega með alríkisrannsóknarlög-
reglumönnunum. Negrarnir lögðu
áherzlu á það, að þeir fengju að
kenna á því. ef „lögregluyfirvöld-
in kæmust að því“, sem þeir hefðu
sagt alrikisrannsóknarlögreglunni.
En samt gerðist það, að kaup-
maður einn gekk að rannsóknar-
lögreglumanni einum. Fyrst rabbar
hann aðeins við hann um daginn og
veeinn, meðan aðrir heyrðu til
þeirra. En þegar þeir voru orðnir
tveir einir, sagði maðurinn: „Eg
held, að ég mundi byrja á skrif-
stofu lögreglustjóra, ef ég væri í
þínum sporum."
Athygli alríkisrannsóknarlögregl-
unnar hafði þegar beinzt í ríkum
mæli að þeim Rainey lögreglu-
stjóra og varalögreglustjóranum
Cecil Price. Rainey hafði skýrt frá
því, hvar hann hafði verið stadd-
ur að kvöldi þ. 21. júní. Hann sagð-
ist hafa farið í heimsókn til konu
sinnar, sem lá í sjúkrahúsi í Meri-
dian, þar sem hafði nálega verið
gerður uppskurður á henni. Þessi
framburður hans var athugaður og
rannsakað, hvort hann ætti við rök
að styðjast. Þá kom í ljós eitt vafa-
atriði, sem gerði það að verkum,
að sannleiksgildi hans mátti draga
í efa. Enginn gat staðfest þá stað-
hæfingu hans, að hann hefði verið
í Philadelphiu milli klukkan 10.40
og 11.30 eftir hádegí, þ. e. einmitt
á þeim tíma, þegar þeir Cchwern-
er, Goodman og Chaney óku á burt
frá fangelsinu og hurfu. Rannsókn-
arlögreglumennirnir voru ákveðnir
í að komast að því, hvernig Price
hafði eytt þessum 50 mínútum, sem
höfðu úrslitaþýðingu fyrir fram-
burð hans.
Um hríð tilheyrði nóttin Ku
Klux Klansamtökunum hið dapur-
lega sumar árið 1964, líkt og verið
hafði einni öld áður. Víðs vegar í
fylkinu teygðu logar sig til him-
ins þessa nótt, er hryðjuverka-
menn kveiktu í kirkjum negranna.
Klanfélagar þeystu ríðandi um
byggðir og hleyptu af byssum sín-
um inn um glugga þeirra húsa, sem
þeir negrar bjuggu í, er voru virk-
ir í mannréttindabaráttunni. Bens-
ín- og dínamitsprengjum var kast-
að að húsum úr bílum, sem voru
ekki stöðvaðir, meðan á sprengju-
kastinu stóð, og hurfu svo á næsta
augnabliki. Víða voru reistir