Úrval - 01.01.1971, Page 105
MORÐ í MISSISSIPPI
103
krossar og þeir brenndir sem tákn
um andstöðu hinna hvítu gegn sam-
skólun og frekara samneyti hvítra
og svartra og sem ögrun gegn „inn-
rásarsegjunum“. Og ógnir hins
„Ósýnilega veldis“ gerðu það að
verkum, að raddir hófsemi og sátta
meðal hvítra manna þögnuðu.
Þ. 2. júlí tók Johson forseti ör-
lagaríka ákvörðun. Eftir langar
viðræður við J. Edgar Hoover, yfir-
mann Alríkisrannsóknarlögreglunn-
ar, sagði forsetinn: „Ég vil, að þér
sendið menn yðar á hnotskóg eftir
Ku Klux Klansamtökunum og lát-
ið þá afla upplýsinga um starfsemi
samtakanna í hverjum hreppnum á
fætur öðrum. Ég vil, að Alríkis-
rannsóknarlögreglan komi á lagg-
irnar eins fullkomnu njósnakerfi og
unnt er til þess að afla haldgóðra
upplýsinga um starfsemi þessara
manna.“
Með þessari tilskipun forsetans
efldist rannsóknarstarfsemi Alríkis-
rannsóknarlögreglunnar í Mississ-
ippifylki og varð miklu víðtækari
en áður.
Hoover gerði sér grein fyrir því,
að lögregluyfirvöld hvers staðar
hlutu að bera ábyrgð á því að halda
hryðjuverkamönnum í skefjum og
brjóta vald þeirra á bak aftur, að
sjálfsögðu með stuðningi sterks al-
menningsálits. Það yrði að fá sjálfa
íbúa Mississippifylkis til aðstoðar,
ef unnt ætti að reynast að tryggja,
að farið yrði að lögum og löggæzi-
an næði yfirhöndinni. Hann ákvað
að herferðin gegn Ku Klux Klan-
samtökunum skyldi verða sameig-
inleg viðleitni ríkisstjórnar og fylk-
isstjórnar. Hann ætlaði að tryggja
sér aðstoð Vegaöryggiseftirlitsliðs
fylkisins og einnig lögreglu og lög-
reglustjóra hinna ýmsu byggðar-
laga, að svo miklu leyti sem slíkt
yrði unnt.
Þ. 10. júlí flaug Hoover suður til
Jackson. f heila klukkustund ræddi
hann við Paul Johnson fylkisstjóra
um vandamál þau, sem sköpuðust
af völdum starfsemi Ku Klux Klan-
samtakanna. Johnson fylkisstjóri
hét forsetanum aðstoð sinni í bar-
áttu þessari. Og síðar sama dag
voru þeir viðstaddir hátíðlega at-
höfn, er opnuð var ný skrifstofa
Alríkisrannsóknarlögreglunnar í
Jackson, ásamt ýmsum embættis-
mönnum borgarinnar og fylkisins.
Rétt fyrir miðnætti fékk C. D.
DeLoach, aðstoðarmaður Hoovers,
upphringingu frá bílahótelinu ,,Sól
og sandur". Karlmannsrödd sagði í
flýti: „Ef þið J. Edgar Hoover og
þið hinir tíkarsynirnir gangið út
úr hótelinu ykkar klukkan átta í
fyrramálið, verðið þið skotnir í
klessu!"
„Við verðum mættir," sagði De-
Loach, „og við munum svipast um
eftir þér.“ Svo slitnaði sambandið.
Þeir fengu aðra upphringingu
klukkan 2 um nóttina. En þá höfðu
rannsóknarlögrgelumennirnir um-
kringt bílahótelið. Og þegar Hoov-
er og aðstoðarmenn hans komu út
úr gistihúsinu á leið sinni til flug-
vallarins, virtist allt með kyrrum
kjörum. Og það gerðist ekkert sér-
stakt á leiðinni til flugvallarins. En
herferðin gegn Ku Klux Klansam-
tökunum breyttist nú fljótlega í
skæruhernað. „Þetta er stríð milli
Ku Klux Klan og Alríkisrannsókn-