Úrval - 01.01.1971, Síða 111
MORÐ í MISSISSIPPI
109
gegn loforði um góða hegðun.
Charles Evers, sem þá var ritari
í deild Landssambands framfarafé-
laga þeldökkra í Mississippifylki,
varð svo að orði, er hann heyrði
fréttirnar: „Réttvísin í Mississippi-
fylki er til skammar."
En innan vébanda Klansamtak-
anna fyrir fundust þó menn, sem
hlýddu á rödd samvizkunnar. Einn
þeirra var Wallace Miller, yfirlög-
regluþjónn í lögreglu Meridian og
ákveðinn aðskilnaðarsinni. Hann
hafði gengið í Klansamtökin í árs-
byrjun. En nú fann hann til ákafr-
ar sektarkenndar. Hann vissi,
hverjir höfðu lagt á ráðin um morð-
in á Schwerner og félögum hans,
og hann ákvað að setja sig í sam-
band við Alríkisrannsóknarlögregl-
una. Ákveðið var, að hann kæmi til
viðtals í annarri viku september-
mánaðar. Hann kom á fund eins
rannsóknarlögreglumannsins með
mikilli leynd, og þeir fundir áttu
eftir að verða margir. Strax á
fyrsta fundinum byrjaði hann að
leysa frá skjóðunni. Hann ræddi
við rannsóknarlögreglumanninn
nótt eftir nótt og veitti honum allar
þær upplýsingar, sem hann hafði á
takteinum, um Klansamtökin,
skipulag þeirra og starfsemi.
Þegar hann hafði skýrt frá öllu
því, er hann vissi, sagði hann: „Eg
ætla að segja skilið við Klansam-
tökin. Ég ætla ekki að láta draga
mig inn í fleiri ofbeldisverk."
Þá svaraði rannsóknarlögreglu-
maðurinn: „Wallace, ef þú heldur
áfram að vera félagi í Klansamtök-
unum, eins og ekkert hafi í skor-
izt, geturðu gert landi þínu og Miss-
issippifylki mikið gagn. Skilurðu
það ekki? Ef við vinnum saman,
getum við gengið milli bols og höf-
uðs á þessum samtökum.“
Það varð að samkomulagi, að Ál-
ríkisrannsóknarlögreglan greiddi
Miller fyrir þann tíma, sem hann
eyddi í samstarf þetta, og að sér-
stakar varúðarráðstafanir skyldu
gerðar honum til varnar. Og þann-
ig tók Alríkisrannsóknarlögreglan
að smeygja uppljóstrurum inn í
stöður sem aðstoðarmenn hins
„Konunglega spekings“, Sams Bow-
ers, í þeim tilgangi að afla gagn-
legra upplýsinga um samtökin.
„STAÐUR TIL ÞESS AÐ
GRAFA ÞÁ Á“
Þessi starfsemi Alríkisrannsókn-
arlögreglunnar innan vébanda Hvítu
riddaranna jókst hröðum skrefum í
september og október. Aðrir upp-
ljóstrarar hjálpuðu til og veittu
ýmsar aðrar upplýsingar um sam-
tökin og starfsemi þeirra, án þess
að nokkur þerira gerði sér grein
fyrir því að hann var aðeins lítið
hjól í stórri vél.
Alríkisrannsóknarlögreglan var
nú viss um, að hún hefði fengið
vitneskju um marga helztu for-
sprakka Klansamtakanna í morði
Schwerners og félaga hans. En
samt gerði hún enga tilraun enn til
þess að hafa gætur á mönnum þess-
um. Uppljóstranastarfið gekk nú
svo greiðlega, að rannsóknarlög-
reglumennirnir vildu ekki hætta á
að vekja tortryggni neinna Klanfé-
laga. En í yfirlýsingu einni, sem
gefin var í október, var 26 ára gam-
all sölumaður bifreiðavarahluta,