Úrval - 01.01.1971, Síða 112
110
ÚRVAL
Doyle Barnette að nafni, nefndur
sem einn þátttakandi í morðum
þessum. Og nú var Barnette horf-
inn. Hann hafði horfið burt frá
Meridian ásamt konu sinni, þrem
dögum eftir að lík ungu mannanna
þriggja fundust. Nú bárust rann-
sóknarlögreglumönnunum frekari
upplýsingar, er snertu morðin. Jam-
es Jordan, 38 ára að aldri, er var
einnig grunaður um þátttöku í
morðunum, var einnig horfinn úr
bænum, og Klansamtökin voru að
leita hans. Þá létu rannsóknarlög-
reglumenn loks til skarar skríða.
Atta dögum eftir hvarf Jordans
fundu tveir liðsmenn Alríkislög-
reglunnar hann suður í Gulfport í
Mississippifylki. Þar vann hann hjá
byggingarfélagi. í fyrstu hélt Jor-
dan því fram, að hann vissi ekkert
um morðin. En hann tók að leysa
frá skjóðunni við fjórðu yfir-
heyrsluna. Barnette fannst svo
vestur í Louisianafylki í nóvember-
mánuði. í fyrstu neitaði hann einn-
ig nokkurri þátttöku í morðunum.
En svo viðurkenndi hann, að hafa
átt aðild að málinu.
Báðir þessir menn undirrituðu
þennan vitnisburð sinn og afhentu
Alríkisrannsóknarlögreglunni hann.
Þær upplýsingar voru siðan tengd-
ar öðrum upplýsingum, sem feng-
izt höfðu hjá Klanfélögum. Og
þannig fékkst loks nákvæm lýsing
á atburðum þessarar hræðilegu
nætur.
Þennan örlagaríka dag hafði Ce-
cil Price varalögreglustjóri fengið
upplýsingar um, að starfsmenn
Ráðs hinna sameinuðu félagasam-
taka negranna væru staddir þar í
nágrenninu. Og hann lagði af stað
í veg fyrir þá. Það liðu aðeins
nokkrar mínútur frá því að þeir
Schwerner, Goodman og Chaney
voru fangelsaðir, þangað til Klan-
félagar í Philadelphiu vissu um
það. Og þeir flýttu sér að kalla út
aðstoðarlið. Tveir troðfullir bílar af
sjálfboðaliðum biðu því reiðubún-
ir, þegar ungu mönnunum var
sleppt úr fangelsinu klukkan 10.30
að kvöldi.
Áætlun þessara sjálfboðaliða var
alveg augljós. Einn þeirra sagði:
„Við erum búnir að finna stað til
þess að grafa þá á, og við höfum
fengið mann til þess að stjórna ýt-
unni, sem á að ýta yfir þá.“
Price varalögreglustjóri hafði
sagt rannsóknarlögreglumönnunum,
að hann hefði fylgt á eftir ungu
mönnunum að bæjarmörkum Phila-
delphiu. Og það reyndist vera rétt.
Svo sneri hann aftur til lögreglu-
stöðvarinnar, og þar fór lögreglu-
þjónninn, sem hafði verið með hon-
um, úr bílnum og inn á stöðina. En
svo ók Price í gegnum bæinn að
nýju og suður fyrir hann. Þar hafði
hann mælt sér mót við Klanfélag-
anna. Þeir biðu hans þar. Og það
var hann, sem var í fararbroddi í
þeim eltingarleik, sem nú hófst.
Það voru þrjár bifreiðir, sem þátt
tóku í eltingarleiknum, lögreglu-
bifreiðin, sem Price ók, tveggja
tonna Fordvörubifreið, sem Doyle
Barnette ók. og rauður Chevrolet,
sem ekið var af Billy Posey, 28 ára
gömlum starfsmanni bensínstöðvar.
Chevroletbifreiðin bilaði á leiðinni
og var því úr leik. En Barnette
missti aldrei sjónar á afturljósun-