Úrval - 01.01.1971, Qupperneq 114
112
skothríðinni lokinni: „Jæja þá, við
skulum henda þessum náungum
upp í stationbílinn og fara með þá
á staðinn.“*
Líkunum var síðan ekið til bæj-
ar Burrage. Þá var stíflugarðurinn
aðeins nokkur fet á hæð. Líkin
voru dregin upp á stíflugarðinn.
Jarðýtu var síðan ekið að honum.
Annað beltið fór yfir hluta af lík-
ama Chaneys. Það tók aðeins
nokkrar mínútur að grafa ungu
mennina þrjá. Klanfélagar þurftu
ekki að óttast, að líkin fyndust.
Búizt var við jarðýtum á staðinn
snemma næsta morguns til þess að
halda áfram vinnunni við stíflu-
gerðina.
Posey sagði: „Þeir ferða komnir
20 fet undir stíflugarðsbrúnina, áð-
ur en yfir lýkur.“
Mennirnir ræddu svo um ráða-
gerðir þær, sem uppi voru um að
brenna stationbifreið ungu mann-
anna. Þegar því verki var lokið,
dreifðust þeir sinn í hverja áttina.
Útþurrkunartilskipun hins „Kon-
unglega spekings“, Sam Bowers,
hafði verið framkvæmd á alger-
* Byssuhlaupsrispur, sem fundust á
kúlunum tveim, er teknar voru úr lík-
ömum Schwerners og Goodmans, og á
kúlunni, sem hæfði Chaney í bakið,
sanna, að þessar þrjár kúlur komu úr
sömu byssunni. Kúlan í kvið Chaneys
kom úr annarri byssu. Af þeirri ástæðu
og vegna vitnisburðar, er síðar fékkst,
álítur Alríkisrannsóknarlögreglan, að
sú kúla sé úr byssu Jordans. En skot
það, er olli bana Chaneys, var það, sem
hann fékk í höfuðið. Byssuhlaupsrisp-
urnar á fimmta skotinu voru ekki nægi-
lega greinilegar til þess að sanna á óyggj-
andi hátt, úr hvaða byssu kúlan kom.
ÚRVAL
lega miskunnarlausan hátt, í skyndi
og alveg umbúðalaust.
LAGAFLÆKJUR, ER HINDRUÐU
FRAMGANG MÁLSINS
Alríkisrannsóknarlögreglan til-
kynnti þ. 25. nóvember, að hún
vissi, hverjir morðingjarnir væru.
Fólk í Mississippifylki ætlaði ekki
að trúa þessu í fyrstu. Rainey lög-
reglustjóri sagði: „Hvers vegna
handtekur Alríkisrannsóknarlög-
reglan þá ekki, fyrst hún veit,
hverjir þeir eru.“
Ríkisvöld Bandaríkjanna geta
ekki stefnt neinum fyrir rétt vegna
morðs, nema morðið hafi verið
framið á stað, sem er í eigu ríkis-
ins. En það var hægt að kæra hina
meintu samsærismenn fyrir að
brjóta landslög um mannréttindi.
Aðfaranótt þ. 3. desember loguðu
ljós lengi í skrifstofu Alríkisrann-
sóknarlögreglunnar í Meridian, er
rannsóknarlógreglumennirnir und-
irbjuggu handtöku 21 manns. 19
þeirra voru sakaðir um samsæri
um „að meiða, þvinga og hræða þá
Michael Henry Schwerner, James
Earl Chaney og Andrew Goodman
og ógna þeim og meina þeim að
njóta réttinda, sem stjórnarskrá og
lög Bandaríkjanna tryggja þeim.“
(Á þeim tíma var þetta afbrot, sem
gat haft í för með sér 10 ára fang-
elsisvist og 5000 dolara sekt sem
hámarksrefsingu). Hinir tveir voru
ákærðir fyrir að hafa vitað um af-
brot þetta og látið undir höfuð
leggjast að skýra hlutaðeigandi yf-
irvöldum frá því.
Skömmu eftir dögun dreifðu
rannsóknarlögreglumennirnir sér