Úrval - 01.01.1971, Side 115
MORÐ í MISSISSIPPI
113
og hófu handtökurnar. Rainey lög-
reglustjóri og Price varalögreglu-
stjóri voru meðal þeirra ákærðu,
sem handteknir voru.
Fréttir af handtökum þessum
bárust um gervallt landið á skömm-
um tíma, og framámenn í mann-
réttindabaráttunni, sem höfðu áður
gagnrýnt Alríkisrannsóknarlögregl-
una harðlega, voru nú ekki seinir
á sér að hrósa henni fyrir fram-
takssemina. „Þetta hefur orðið til
þess að endurvekja trú mína á lýð-
ræðið,“ sagði dr. Martin Luther
King. En Rita, ekkja Mickeys
Schwerners, lét í ljósi skoðun
margra, þegar hún sagði: „Hand-
tökur eru alveg gagnslausar, ef það
er ekki hægt að fá uppkveðna
dóma.“
Að morgni þ. 10. desember söfn-
uðust hinir ákærðu saman í réttar-
salnum til fyrstu yfirheyrslna, að
undanteknum þeim Jordan og Doy-
le Barnette. Ungfrú Esther Carter,
er var forseti réttarins, neitaði að
leyfa rannsóknarlögreglumanni að
bera vitni viðvíkjandi undirritaðri
frásögn Doyle Barnette. Hún gaf
þann úrskurð, að þar væri aðeins
um að ræða vitnisburð, reistan á
sögusögnum.
Þessi úrskurður átti sér ekkert
fordæmi. En ungfrú Carter var
ósveigjanleg. Af þeim sökum ákvað
ákærandinn að leggja ekki fleiri
vitnisburði fyrir réttinn. Ungfrú
Carter vísaði síðan kærum ríkis-
stjórnarinnar á bug og úrskurðaði,
að þær hefðu ekki við rök að styðj-
ast. Hinir ákærðu voru skyndilega
frjálsir að nýju. Slíkt hafði gerzt
ótrúlega skyndilega. Jafnvel hinir
ákærðu voru alveg sem þrumu
lostnir vegna þessarar slembi-
lukku. Þegar þeir höfðu náð sér
eftir undrunina, gerðust þeir kátir
mjög, hlógu og mösuðu við vini og
kunningja, sem heilsuðu þeim með
handabandi og herðaklappi. Einn
þeirra sagði: „Nú gæti Rainey
gamli vel náð kosningu sem fylkis-
stjóri.“ Þrátt fyrir þá staðhæfingu
dómsmálaráðuneytisins, að þessi
dómsúrskurður drægi aðeins máls-
meðferðina á langinn, en ætti ekki
að skoðast sem endanleg niður-
staða, þá var ekki hægt að breiða
yfir þá staðreynd, að Hvítu riddar-
arnir hefðu unnið fyrstu lotu.
Þ. 11. janúar árið 1965 kom al-
ríkisákærukviðdómur saman í Jack-
son, höfuðborg Mississippifylkis, til
þess að hlusta á ákærur þær, sem
bornar höfðu verið fram í málinu,
að tvær kærur gegn 18 mönnum
hefðu við rök að styðjast (þar á
meðal þeim 17, sem handteknir
höfðu verið þ. 4. desember). Og
enn var aðalákæran sú, að menn
þessir hefðu gert samsæri um að
meina látnu mönnunum þrem um
að neyta þeirra mannréttinda, sem
lög landsins tryggðu þeim.
Verjendur sakborninganna voru
ekki seinir á sér að bera fram form-
leg mótmæli. Og síðla í febrúar-
mánuði kvað W. Harold Cox hér-
aðsdómari upp þann úrskurð, að
samkvæmt landslögum væri ekki
hægt að dæma hina ákærðu fyrir
alvarlegra afbrot en meiri háttar
yfirsjón. Það þýddi, að jafnvel þótt
þeir yrðu dæmdir sekir um öll
atriði ákæranna, gæti hámarksrefs-
ing flestra hinna ákærðu ekki orð-