Úrval - 01.01.1971, Blaðsíða 118
116
ÚRVAL
mikill“. Hann sagði enn fremur:
„Mennirnir, sem framkvæmdu
þetta, eru betri en hópurinn í
Philadelphiu. Hin tæknilega fram-
kvæmd aðgerðanna var að vísu
ekki eins góð og hjá hópnum í
Philadelphiu, en þessir menn tala
ekki.“
Innan 72 tíma hafði Alríkisrann-
sóknarlögreglan samt tekið saman
lista yfir þá menn, sem grunaðir
voru um að hafa átt aðild að að-
förinni. Vitneskja þessi grundvall-
aðist á upplýsingum frá uppljóstr-
urum innan Klansamtakanna. Og á
listanum var nafn hins „Konung-
lega spekings", Sams Bowers.
Hinn skelfilegi dauðdagi Dahm-
ers vakti samúð fólks um gervallt
fylkið og varð til þess að magna
andúðina á Hvítu riddurunum
meira en nokkuð annað hafði áður
gert. Þetta breytta viðhorf átti eft-
ir að hafa mikla breytingu í för
með sér, hvað frekari réttarhöld
snerti.
„KVEIKT í SPRENGI-
EFNINU“
' Þjáningar og dauði Vernons Dah-
mers reyndist að vísu verða það
vopn, sem rauf stórt skarð í virk-
isvegg Bowers. En morðin á þeim
Schwerners, Goodman og Chaney
voru samt enn aðalmálið í barátt-
unni gegn Klansamtökunum. Og um
tíma virtist sem allt væri nákvæm-
lega á sama stigi og daginn, er
ungu mennirnir hurfu. Það virt-
ist sem enginn árangur hefði náðst.
Kærum þeim, sem bornar höfðu
verið fram á nokkra menn, hafði
verið vísað frá dómstólunum. Eng-
inn þeirra sat enn í fangelsi. En
hér var aðeins um millibilsástand
að ræða í hinni löngu lögfræðilegu
baráttu.
Loks gerðist það í febrúarmán-
uði árið 1967, að ákærukviðdómur
í Jackson náði samkomulagi um
nýjar, formlegar ákærur. Nafn eins
hinna ákærðu á ákærulistanum frá
árinu 1965 var fellt burt, en tveim
nöfnum var bætt þar við. Og ann-
ar þessara ákærðu manna var hinn
„Konunglegi spekingur“ Sam Bow-
ers. Þetta var mjög þýðingarmikil
þróun. Hin brennandi spurning var
nú þessi: Gat ríkisstjórnin sannað
ákærurnar á þann hátt, er kvið-
dómur í Mississippifylki teldi full-
nægjandi?
Réttarhöldin hófust í alríkisrétt-
inum , Meridian þ. 9. október árið
1967, þrem árum, tveim mánuðum
og fimm dögum eftir að rannsókn-
arlögreglumenn Alríkisrannsóknar-
lögreglunnar höfðu fundið líkin í
rauða leirnum í stíflugarði Olens
Burrage. Réttarsalurinn var troð-
fullur. Flestir áheyrenda voru ætt-
ingjar og vinir hinna 18 sakborn-
inga, sem sátu nálægt verjendun-
um 12. Alríkisdómarinn Harold
Cox var forseti réttarins.
Hinn „Konunglegi spekingur"
Sam Bowers fylgdist með upphafi
réttarhaldanna með hálfluktum
augum. Svipur hans sýndi, að hon-
um fannst sem þetta kæmi sér ekki
við. Lawrence Rainey lögreglu-
stjóri og Cecil Price varalögreglu-
stjóri virtust ekki alveg eins róleg-
ir. Þeim virtist ekki líða sem bezt,
heldur voru þeir á sífelldu iði.
Við hlið þessara þriggja sátu