Úrval - 01.01.1971, Side 125
HVAÐ GERIST ÞEGAR MAÐUR DEYR
123
efnislegum formum, en ofan og
handan þeirra taeggja er hugurinn
sem er varanlegur.
Shaw Desmond, félagsfræðingur,
leikritaskáld og rithöfundur:
Dauðinn er í mínum augum eitt
af mörgum hliðum á veginum til
nýrra lífa — og það eru lítil og
vingjarnleg hlið. Hann er hin eilífa
framvinda frá lægri til hærri
sveiflutíðni, þannig að bæði hér á
jörðu og í heimum andans nálgumst
við stöðugt það sem mennirnir
nefna ,,guð“ — vegna þess að þeir
eiga ekkert annað orð yfir það sem
ekki er hægt að segja með orðum.
Dauðinn er ekki einungis hluti af
lífinu, heldur kjarni þess.. í æðsta
skilningi eru líf og dauði eitt og
hið sama. Enginn maður getur dá-
ið — og vissulega engin kona —
því að sé maðurinn heili lífsins, þá
er konan sál þess. En í fyllingu
tímaleysisins, munu maður og kona
verða eitt — því að þau tvö eru
eins og lífið og dauðinn aðeins tvær
hliðar á sömu heild.
Óttinn er hinn eini dauði. Hann
er dauðinn í lífinu. Það er til að
sigrast á óttanum og ryðja braut-
ina til vizkunnar og þess kærleika
sem er vizka, að við snúum aftur
og aftur til þessa heims og ann-
arra heima þangað til við höfum
lært lexíur okkar í þeim öllum. Og
lexía okkar er, að viS getum ekki
dáiff.
Hvort eyðing mannssálar sem
eitt sinn hefur orðið til, er hugsan-
legur möguleiki, veit ég ekki. Væri
svo, og gæti eyðing einstaklings-
eðlisins eða vitundarinnar raun-
verulega átt sér stað, þá myndi sú
eyðing vera hinn eini dauði. Sjálf-
ur er ég þeirrar trúar, enda þótt
ósannanlegt sé í okkar takmörkuðu
verund, að þá er sálin sem er eilíft
líf, sé eitt sinn til orðin, vari hún
að eilífu þrátt fyrir allar sveiflur
fram á við og aftur á bak, vegna
þess að guff getur ekki dáiff — og
guð og sálin eru eitt.
Dauðinn er til í ótal myndum, og
hver þeirra er opinberun. Til dæm-
is erum við öll að mínum dómi
hlutar af sálartieildum, og allar þær
sálir eru sjálf okkar, en það litla
brot sem lifir hvert jarðneskt líf og
við greinumst frá þegar við „deyj-
um“, er aðeins örsmá ögn af heild-
inni. En sálarheildin er sjálf hluti
af hópsál sem er æðra sjálf okkar
er við finnum þegar við deyjum.
Sem sé — við deyjum til að lifa.
Manly Palmer Hall, heimspek-
ingur og höfundur dulrænna bóka:
Hvað er dauðinn? Þetta er geysi-
lega víðfeðmt efni sem um hefur
verið fjallað í sögu mannkynsins
frá ótal sjónarhornum. Mér virðist
þó, að vitrænar og vísindalegar
skýrgreiningar hafi einatt næsta
lítið raunhæft gildi fyrir venjulegt
fólk. Dauðinn er fyrst og f remst
persónuleg reynsla. Hver einstakl-
ingur verður að mæta þessari
reynslu, hver svo sem trú hans
kann að vera, og hann verður að
horfast í augu við umskiptin og af-
leiðingar þeirra með því að aðhæfa
sig raunveruleika sem kemur hon-
um ef til vill á óvart og ef til vill
ekki.
Af þeim sökum álít ég æskileg-