Úrval - 01.07.1971, Blaðsíða 3
/ FRÓÐLEGRI GREIN eftir Henry
Ford II., sem birtist á blaðsíðu 4
í þessu hefti, segir, að einn stærsti
réttur í þjóðfélögum hins vestrœna
heims sé valfrelsið. „Þetta frelsi er
vissulega afleiðing hinnar tækni-
legu og efnáhagslegu þróunar; hinn-
ar álmennu velmegunar, sem margt
ungt fólk lítilsvirðir svo mjög.
Aldrei áður hefur ei'nstaklingur-
inn haft svo tnikið svigrúm á at-
hafnasviði lífsins. Það bjóðast svo
margir atvinnumöguleikar, að eng-
inn með meðál hæfileika og sann-
gjarnar kröfur þarf að binda sig
við vinnu, sem hann eða hún kœrir
sig ekki um“.
SIÐAN VÍKUR Ford að stöðu œsk-
unnar í tilverunni og samfélaginu
og getur þess, að hún vilji finna, að
hún eigi ítök og geti haft áhrif á
gang mála. Hún vill bœta heiminn,
jafnt fyrir aðra sem sjálfa sig. „Ég
held, að unga kynslóðin hafi meira
váld en hún gerir sér grein fyrir
... enginn, enginn háskólarektor,
enginn forstjóri stórfyrirtœkis, má
sín svo mikils, að hann geti breytt
hlutunum í einu vetfangi. Ef nógu
margir finna, að eitthvað þarfnast
breytinga, þá verða forráðamenn-
irnir að fylgja kröfunni, ef þeir
vilja halda stöðu sinni og áliti sem
leiðtogar. Ef stúdentar krefjast, að
reglum háskólans sé breytt og. ef
borgararnir fara fram á, að eitt-
hvað verði gert til varnar umferð-
aróhöppum eða mengun, þá verður
eitthvað gert“.
GR.EIN HENRY FORDS er vissu-
lega athyglisverð og margt skyn-
samlegt, sem þar er sagt. En trú
hans á vilja yfirválda til að breyta
eftir geðþótta þegnanna og fara eft-
ir kröfum þeirra virðist vera einum
of mikil. Auðvitað eiga valdhafar
að fara eftir því, sem meirihluti
borgaranna vill. En þeir gera það
ekki nema í örfáum tilvikum, þvi
miður.
BÓKIN UM KENT STATE, sem
Úrvál birtir um þessar mundir, er
gott dæmi um það. Þar kostaði um-
Kemur út mánaðarlega. TJtgefandi: Hilmir hf.,
Skipholti 33, Reykjavík, pósthólf 533, simi 35320.
Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Afgreiðsla: Blaðadreif-
ing, Skipholti 33, sími 36720. Verð árgangs krónur
600,00. I lausasölu krónur 60,00 heftið. Prentun og bókband: Hilmir hf.
Myndamót: Rafgraf hf.