Úrval - 01.07.1971, Side 6
4
Hvernig getur unga
kynslóðin bætt þjóðfélagið?
EFTIR HENRY FORD II.
Enginn vafi er á því,
að mestur hluti hins
siðmenntaða heims á í
baráttu við trúna á
sjálfan sig. Hinar rót-
tæku stúdentaóeirðir,
sem skipa forsíðutitla
blaðanna, eru aðeins
hinn sýnilegi tindur
hrikalegs jökuls. Ólgan,
sem ríkir í háskólunum,
er hvarvetna til staðar
og hefur fyrir löngu
breiðzt til menntaskól-
anna. í Bandaríkjunum
höfða uppþot ungling-
anna til vandamála stór-
borganna, til baráttunn-
ar gegn fátæktinni, bar-
áttunnar fyrir borgara-
réttinum og til mótmæla
gegn stríðinu í Víet-
nam.
En unga kynslóðin er
ekki ein um að stofna
til óeirða. Bréfberar,
slökkviliðsmenn, lög-
regluþjónar og annað
þjónustufólk skipulegg-
ur verkföll. Óbreyttir
stéttafélagsmenn þver-
skallast við boðum og
bönnum yfirboðaranna,
prestar bjóða biskupum
birginn og biskupar
Vatikaninu.
Hægt er að skoða
þessi fyrirbrigði á
tvennan hátt, sem áreið-
anlega er jafnréttur. —
Segja má, að fyrir fjölda
fólks er hollusta við
stofnanir þjóðfélagsins
og hlýðni við skrifuð
og óskrifuð lög þess,
ekki annað en sjálf-
sagður hlutur. Hvað
sem manni finnst um
þetta vandamál eða
annað, verður maður að
horfast í augu við þá
staðreynd, að slíkt al-
mennt hlutleysisviðhorf
er mjög neikvætt. Ef
ekki væru til reglur,
sem fjöldinn færi eftir,
yrði ein allsherjar ring-
ulreið, en lögregluvald-
ið byggist á ofbeldi og
ótta.
Meiri glæta er þó í
hinni skýringunni varð-
andi upplausnaranda
nútímans. Það má segja,
að fólk. hvar sem er í
heiminum —• og sér-
staklega unga fólkið —
vilji ekki lengur lúta
boðum og bönnum, sem
gera lífið erfiðara og
gleðisnauðara en þyrfti
að vera. Þetta fólk met-
ur innihald lífsins og
ekki sízt samvistir við
annað fólk meira, held-
ur en þjóðfélagslega
stöðu og efnisleg gæði.
Frá þessu sjónarmiði
séð, er uppreisnarand-
inn aðeins staðfesting á
hinu jákvæða í mann-
inum. Hann er krafa
um frelsi og árás á alla
harðstjórn.
Það er í þessu, sem
speglast vonin um betri
heim, hamingjusamara
líf fyrir okkur öll, rétt-
látari þjóðfélagsskipun
með meira frelsi fyrir
einstaklinginn.
Þess vegna trúi ég, að
hinar siðvæddu þjóðir
nálgist tímamót. Upp-
reisnarandinn getur
eyðilagt okkur eða
frelsað okkur. Hann
getur leitt til algerra
ringulreiðar og kúgun-
— Heimili og skóli —