Úrval - 01.07.1971, Side 12
10
sló maðurinn hann fjórum sinnum í
höfuðið og sagði: „Þegiðu eða ég
drep þig.“ Hann festi heftiplástur
yfir munn og augu Kennys í mikl-
um flýti, lagði síðan umslag á rúm-
ið og hjálpaði Kenny niður þrepin
og inn í bifreiðina. Kenny var að-
eins klæddur í nærbuxur og sokka.
„Er öllu óhætt?“ hvíslaði maður-
inn í labbrabbtæki sitt.
Félagi hans svaraði í sitt tæki, þar
sem hann stóð á götuhorni þrem
húsum í burtu: „Öllu er óhætt.“
Um 20 mínútum síðar lagði barna-
ræninginn bifreiðinni, fór með
Kenny upp þrep og að rúmi, sem
ekkert var í annað en ein dýna.
Hann lagði drenginn þar á grúfu,
batt hendur hans og fætur við rúm-
ið með vír og tróð vaxi upp í eyru
honum.
Allt gekk sinn vanagang heima
hjá Younghjónunum á mánudags-
morgninum, að því undanskildu, að
Kenny kom ekki niður til morgun-
verðar. Þegar klukkan var orðin
átta, fór frú Young því upp á loft
til þess að vekja hann. Það lá um-
slag á rúminu. En Kenny var ekki
í rúminu. Inni í umslaginu var afrit
af vélritaðri orðsendingu. Hún
hljóðaði svo: „Kallið ekki á lög-
regluna, því að þá mun varningur-
inn, sem ykkur vantar, verða eyði-
lagður miskunnarlaust. Veitið öll-
um þeim aðiljum, sem áhuga hafa,
eðlilega skýringu á hvarfi þessa
varnings. Við þörfnumst 250.000
dollara — eingöngu í hundrað doll-
ara seðlum. -— Verið við almenn-
ingssímaklefann á Standarstöðinni á
norðausturhorni Westwoodstrætis
ÚRVAL
og Ohiostrætis klukkan 6 eftir há-
degi á miðvikudaginn..“
„Þetta er ein af brellunum hans
Kennys.“ hugsaði frú Young, er
hún sýndi manni sínum bláðið.
Young fór upp í herbergi sonar
síns og leit á vegsummerkin: Rúm-
fötin voru úti um allt gólf, og renni-
hurðin var opin. Hann fylltist fyrst
ofsareiði, þegar hann gerði sér grein
fyrir sannleikanum. En síðan fann
hann til hræðilegs ótta. Hann sneri
sér að konu sinni og sagði: „Ég held,
að hér sé ekki um brellu að ræða.“
Þau litu hvort á annað, féllust síð-
an í faðma og grétu. Síðan sagði
Young og skeytti ekkert um aðvör-
unina: „Ég ætla að hringja í lög-
regluna."
Nokkrum mínútum síðar komu
menn frá lögreglunni í Beverly
Hills, og skömmu síðar komu menn
frá Alríkisrannsóknarlögreglunni.
Ýtarleg leit var gerð í herbergi
Kennys, í stiganum úti fyrir og á
stígnum, er lá heim að húsinu. En
engin gögn fundust, er komið gætu
lögreglunni á sporið. Hvergi var
nokkur fingraför að finna. Og vél-
ritunin á blaðinu var svo óskýr, að
ekki yrði unnt að hafa uppi á rit-
vélinni með hjálp letursins. Menn
Alríkislögreglunnar réðu Young-
hjónunum til að fara alveg ná-
kvæmlega eftir fyrirskipunum
barnaræningjans. Þeir sögðu þeim,
að þau skyldu ekki gera neitt til
þess að hafa uppi á barnaræningj-
anum, fyrr en Kenny væri kominn
heim heill á húfi.
Alríkisrannsóknarlögreglumenn-
irnir höfðu að vísu fullvissað Young-