Úrval - 01.07.1971, Blaðsíða 17
barnsránið sem heppnaðist næstum
15
benti hann strax á myndina af
Miller. Skömmu síðar skýrði kona
sú, sem bjó með Patterson, frá því,
að hún hefði eitt sinn hlustað á sím-
tal þeirra Patterson og Millers í
gegnum millisambandssíma á heim-
ih þeirra Patterson og hefði hún
þá heyrt mann sinn og Miller ræða
stuttlega um það, hvar „fela skyldi
krakkann“. Hún sagði, að þetta
hefði gerzt á undan barnsráninu.
Miller neitaði því, að hann hefði
ekið Patterson til Grefconámunnar
í bifreið, sem væri í eigu ríkis-
stjórnarinnar. En plögg Rannsókn-
ardeildar skattþjónustunnar sýndu,
að Miller hafði haft bifreið númer
90110 til afnota í starfi dagana 3.
til 7. apríl. Það var Plymouthbif-
reið af árgerð 1963. Alríkisrann-
sóknarlögreglan leitaði að bifreið
þessari og fann hana. Og við rann-
sóknarstofuefnagreiningu efna, sem
skafin voru af hjólum hennar, felg-
um og innan af aurhlífunum, sann-
aðist það, að bifreið þessi hafði ör-
ugglega verið í Grefconámunm.
Miller hélt því fram, að hann hefði
verið að ræða við bílasala um mál
viðvíkjandi Rannsóknardeild skatt-
þjónustunnar klukkan 6.55 á mið-
vikudagskvöldinu, þegar lausnarféð
var afhent. Sagði hann að þær við-
ræður hefðu átt sér stað 30 mílum
frá gjánni við San Diegohraðbraut-
ina. Miller færði alltaf reglulega
ýmsar upplýsingar um störf sín í
dagbók á skrifstofunni. Og í henni
sást reyndar, að þetta gat staðizt.
Og bílasalinn staðfesti, að Miller
hefði heimsótt hann. En þegar farið
var að rekja atburðarás þessa dags
ýtarlega í samhengi, mundi hann
eftir því, að Miller hafði reyndar
talað við hann rétt eftir hádegið eða
fyrr síðdegis, en ekki um kvöldið.
Yfirkviðdómur Los Angelesborg-
ar hlustaði gaumgæfilega á allan
framburð og sannanir gegn Miller
og lýsti svo yfir því þann 31. marz
1970, að hann áliti Miller vera sek-
an. Það var aðeins fjórum dögum
áður en sök hans hefði fyrnzt sam-
kvæmt lögum. I ágúsmánuði var
hann svo dæmdur sekur um ránin
tvö, og í september var hann fund-
inn sekur um barnsránið og dæmdur
í ævilangt fangelsi (Áfrýjun hans
mun líklega verða tekin fyrir af
dómstólunum síðar í ár).
En hvað Alríkisrannsókarlögregl-
una snertir, er málinu ekki lokið,
fyrr en 250.000 dollara lausnarfénu
hefur verið skilað aftur til eigand-
ans. Miller hefur rétt til þess að
biðja um náðun gegn skilyrðum
eftir sjö ár samkvæmt lögum
og þegar hann verður náðaður
munu rannsóknarlögreglumennirnir
svipast enn betur um eftir þessum
100 dollara seðlum.
Ronald Lee Miller tókst næstum
því að fremja hið fullkomna mann-
rán. Og valdi nokkurt eitt orð hon-
um sérstakrar gremju það sem eftir
er ævinnar, mun það örugglega
verða orðið „næstum“.