Úrval - 01.07.1971, Síða 20
18
ÚRVAL
þessari af stokkunum. Það hófst
geysimikið undirbúningsstarf við
öflun alls konar upplýsinga, og var
því mjög hraðað. Síðan hófust rann-
sókpir á hagkvæmni áætlunarinn-
ar og ýmissa þátta hennar og hvern-
ig bezt yrði að haga framkvæmd-
um, ef í þetta yrði ráðizt. En nú
virðist það verða sífellt öruggara,
að þessi djarfa áætlun muni í raun-
inni verða framkvæmd.
„Ég hef séð landssvæði, þar sem
mikil landgæði eru, og ég hef séð
stórkostlega vatnsafls- og áveitu-
möguleika áður“, sagði David Lil-
ienthal, fyrrverandi yfirfram-
kvæmdastj óri Framkvæmdaráðs
Tennesseedalsins (þ.e. allsherjar
framkvæmd Tennesseedalsáætlun-
arinnar, er tók til virkjana, raforku-
framleiðslu, áveitna, o.fl. fram-
kvæmda, sem gerbreyttu þessu
svæði í Bandaríkjunum. Þýð.). „En
ég hef aldrei séð neitt, sem stenzt
samanburð við þá stórfenglegu
framleiðslumöguleika, sem fram-
kvæmd Mekongáætlunarinnar ber í
skauti sínu“. Mekongflj ótið ber sex
sinnum meira vatn til siávar en
Nílarfljót. Og það gæti framleitt
meira magn af ódýrri raforku,
miklu, miklu meiri, en TVA-, Grand
Coulee- og Hoovervirkjanirnar í
Bandaríkjúnum til samans. Þessi
raforka mundi verða hvatning til
stofnunar nýrra iðngreina, álbræðslu
og námugraftrar og gæti síðar meir
séð fjarlægum stöðum fyrir raf-
orku, jafnvel alla leið suður í Mala-
ysiu og Singapore.
Samkvæmt áætluninni gætu á-
veitukerfin einhvern tíma náð yfir
svæði, sem er á stærð við Frakk-
land. Bændur, sem búa nú aðeins
meðfram bökkum fljótsins, gætu
dreifzt lengra út frá fljótinu og
numið og ræktað svæði, sem eru
xangt frá því. í stað einnar hrís-
grjónauppskeru á ári gætu þeir
fengið tvær eða þrjár auk þess að
rækta margar aðrar nytjajurtir.
Svæðið við neðsta hluta Mekong-
fljótsins, sem er hið síðasta van-
þróaða og strjálbýla svæði Asíu,
er talizt getur raunverulegt land-
flæmi mundi breytast í matarbúr
álfunnar. Og stíflugarðar og skipa-
stigar mundu gera Mekongfljótið
skipgengt alla leið að landamærum
Burma, en slíkt mundi hafa geysi-
lega mikil áhrif á verzlun og við-
skipti.
„Áætlun þessi miðar jafnvel að
vjðhaldi friðar á þessu svæði“ segir
Raymond A. Wheeler hershöfðingi,
sem áður var yfirmaður Banda-
rísku herverkfræðingasveitarinnar.
„Með því að temja og virkia fljótið
með hjálp samrœmds alþjóðlegs
kerfis stíflugarða, þá er þessum
löndum jafnframt veitt hvatning til
þess að vinna saman“. Dæmi: starf-
ræksla hins áætlaða Samborstíflu-
garðs í Kambodíu í samvinnu við
starfrækslu hins áætlaða Pa Mong-
stíflugarðs milli Laos og Thailands
mundi lækka stórkostlega raforku-
kostnað á báðum þessum stöðum.
Og báðir þessir stíflugarðar í aðal-
fljótinu mundu skapa jafnvægi
vatnsstreymis í því á hinum tímum
árs, en slíkt mundi minnka þörfina
á dýrum varnargörðum í Suður-
Vietnam.
Þessi draumur hefur orðið Me-
kongþjóðunum sannkallaður inn-