Úrval - 01.07.1971, Side 22
20
ÚRVAL
lands. í Laos flugum við í þyrlu
til þess að skoða Nam Ngumstíflu-
garðinn, sem verið er að byggja yfir
eina þverá Mekongfljótsins. Hann
mun kosta 30 milljónir dollara.
Hann liggur þvert yfir stóra gjá.
Þarna er um að ræða bardagasvæði,
sem er aðeins 40 mílum fyrir norð-
an Vientiane. Þar er því um að ræða
eitt djarflegasta fyrirtæki verald-
arinnar. Svefn hinna 1200 verka-
manna og iðnaðarmanna frá Japan,
Thilandi og Laos raskast oft af skot-
hríð í hæðunum þarna í kring. Og'
eina nóttina réðust skæruliðar Pat-
het Laos á þorp eitt, sem var tæpa
50 metra frá bækistöð verkamann-
anna. En samt er stöðugt haldið á-
fram að steypa stíflugarðinn, jafn-
vel með hjálp flóðljósa að nætur-
lagi. „Við getum ekki beðið, þang-
að' til friðurinn er öruggur", út-
skýrði embættismaður einn í Laos
fyrir okkur. „Við getum það ekki,
því að allar vonir okkar eru bundn-
ar við Mekongáætlunina. Það er
mikið í húfi . hrísgrjónin handa
börnum okkar eru í húfi“.
Þegar tekið er tillit til áhættunn-
ar, sem framkvæmd þesarar áætl-
unar hefur í för með sér, má með
sanni segja, að framlagið til stíflu-
garðanna og undirbúningsstarfs
vegna frekari framkvæmda sé þeg-
ar orðið álitlegt. Mekongþjóðirnar
fjórar hafa lagt fram samtals 89
milljónir dollara, og næstum 109
milljónir hafa aðrar þjóðir lagt af
mörkum. 26 þjóðir, 11 stofnanir
Sameinuðu þjóðanna og þrjár einka-
stofnanir hafa lagt fram fé, tæki og
aðrar birgðir og tæknilega aðstoð.
Bandaríkin hafa lagt mest af mörk-
um (16V2% af allsherjarsjóðnum),
en Vestur-Þýzkaland og Japan eru
þar ekki langt á eftir.
„Mekongáætlunin sýnir, hverju
raunveruleg alþjóðleg samvinna fær
áorkað fyrir vanþróuðu löndin“,
segir Hart Schaaf, Bandaríkjamað-
ur, sem vann á vegum Sameinuðu
þjóðanna að sameiningu allra fram-
kvæmda þessara í heilan áratug.
„Þetta er eitt helzta afreksverk
Sameinuðu þjóðanna enn sem kom-
ið er“, segir U Thant, ritari þeirra.
í aðalbækistöðvum Mekongnefndar-
innar í Bangkok í Thailandi hafa
starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
sótt víða til fanga til þess að full-
nægja hinum ýmsu þörfum. Þeir
hafa leitað fanga um víða veröld.
Og þeim hefur líka orðið mikið á-
gengt. Ástralíumenn hafa fram-
kvæmt boranir á álitlegum stíflu-
garðsstöðum við aðalfljótið. Hrað-
bátar, sem Nýja Sjáland gaf, flytja
indverska vatnafræðinga og banda-
ríska verkfræðinga til afskekktra
staða við fljótið og þverár þess.
íran leggur til olíur og bensín fyrir
bátana. fsraelsmenn reka tilrauna-
búgarða í Kambodíu og Laos og
veita landsbúum þannig af gnægta-
brunni reynslu sinnar, sem þeir hafa
öðlazt í eyðimörkinni heima í landi
sínu.
„Mekongandinn“ er smitandi. La-
osbúar hafa lengi álitið að Thailend-
ingar vilji ráða flestu við fram-
kvæmd áætlunarinnar, og hefur
þeim ekki líkað það sem bezt. Kam-
bodía hefur jafnvel ekki stjórn-
málasamband við Thailand eða Suð-
ur-Vietnam. En samt hafa löndin
fjögur haft náið samstarf í Mekong-