Úrval - 01.07.1971, Blaðsíða 24
22
ÚRVAL
verri viðureignar. Yfirvöldin í
Thailandi gerðu ekki ráð fyrir svona
miklum erfiðleikum vegna fólks,
sem flytja varð burt af svæðum,
sem fara í kaf undir uppistöðulón-
in, en þessu fólki verður að útvega
nýja samastaði. Einnig ofmátu þeir
hæfni bændanna til þess að nota
áveiturnar á skynsamlegan hátt.
Sumir smábændur skyldu ekki regl-
urnar, sem giltu um áveituskurð-
ina, heldur stífluðu þeir þá meS
bambusstíflugörðum, svo að þeir
fengju allt vatnið, en nágrannarnir
ekkert. Hér eftir munu áveitusér-
fræðingar verða þjálfaðir jafnóðum
og nýir stíflugarðar verða byggðir.
Eitt af erfiðara vandamálunum,
sem verður að leysa í náinni fram-
tíð, snertir fjármagnið. Það verður
erfitt að útvega hið geysilega fjár-
magn, sem þörf verður fyrir. Vonað
er, að velmegunin, sem bygging
stíflugarðanna mun hafa í för með
sér, muni smám saman leiða til
fjármagnsmyndunar í löndum þess-
um, sem megi síðan nota til frekari
framkvæmda. En í fyrstu verða hin
fjármögnuðu tækniþjóðfélög að auka
aðstoð sína. í samræmi við stefnu
Nixons í Asíumálum munu starfs-
menn aðstoðaráætlunarinnar „AID“
í Asíulöndum vænta þess, að Banda-
ríkin veiti nægilega aðstoð á bak
við tjöldin, jafnframt því sem þau
munu krefjast þess, að önnur stór-
veldi taki hæfilega hlutdeild í hinni
fjárhagslegu byrði. Mekongáætlun-
in mun næstum örugglega verða
framkvæmd með einhverjum ráð-
um. Nú er ekki lengur um það að
ræða, hvort heimurinn hafi efni á
að leggja fram þetta fjármagn. Við
höfum ekki efni á því að láta slíkt
undir höfuð leggjast.
f Patrickflugfiotadeildarstöðinni í Floridafylki gengur maður inn i
röntgenmyndatökuherbergið um einar dyr og fer svo burt út um aðrar.
Dag einn biðu sjö sjúklingar rólegir þar fyrir utan. Læknirinn var að
gefa inn barium (sem iþarf venjulega fyrir röntgenmyndatökur af maga
og þörmum). í hvert skipti sem kallað var á næsta sjúkling, hrópaði
læknirinn til sjúkraliðans og iheimtaði meira barium.
Allt gekk vel, þangað til röðin kom að síðasta sjúklingnum að fara
inn í röntgenmyndaiherbergið. Hann þverneitaði að fara þangað inn.
Þegar hann var spurður um ástæðuna, svaraði hann: „Ég er búinn að
sjá sex aðra sjúklinga fara inn um þessar dyr, og enginn þeirra hefur
ko-mið út aftur. Og 1-oks skildi ég ástæðuna. 1 hvert skipti sem sjúk-
lingur fór þangað inn, öskraði læknirinn „Bury them“ (Grafið þá!).
AIC Dougias L. Baker.
Kona segir við hjúskaparráðgjafann: ,,Sko, það er þessi eilífi, sígildi
þríhyrnin-gur — hann — ég — og sjónv-arpstækið.“