Úrval - 01.07.1971, Síða 26
24 IJRVAL
*☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
Svona er lífið
>■☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
Prófessorinn reis varlega upp í
rúminu morguninn eftir sitt eigið
brúðkaup og sagði undrandi:
,.En hamingjan góða, fröken Berg,
liggið þér hér?“
—o—
Hjónin voru saman í stórverzlun
að gera innkaup. Þetta var á laugar-
degi og fjölmennt.
Þau urðu viðskila í mannþröng-
inni og konan sneri sér að lúgu þar
sem stóð ..upplýsingar“. „Kannski
þér getið aðstoðað mig; ég hef misst
manninn minn.“
„Sjálfsagt." svaraði stúlkan vin-
gjarnlega. „Á þriðju hæð til hægri,
— sorgarklæðnaður og kransar."
„Hvernig stendur á bví, að hund-
urinn þinn dinglar rófunni upp og
niður, en ekki til hliðanna eins og
aðrir hundar gera?“
„Það er vegna þess, að íbúðin okk-
ar er svo lítil.“
—o—
Fallhlífarhermaður kom heim í or-
lof. Hann var spurður hve oft hann
hefði stokkið úr flugvél.
„Aldrei,“ svaraði hann, „en mér
hefur verið fleygt út átján sinnum."
—o—
Hann var piparsveinn, en þótti
alltaf nokkuð kvensamur.
Vinur hans sem lengi hafði verið
giftur sagði eitt sinn við hann:
„Þú ættir nú að gifta þig með
henni frk. Henriettu. Konur eins og
hún vaxa ekki á hverju tré, skal ég
segja þér.“
„Það getur verið,“ sagði Hansen,
„en ég kann nú bezt við að sveifla
mér af einu trénu á annað.“
—o—
„Og svo er það síðasta spurningin
áður en ég ræð yður sem húshjálp:
„Vitið þér hvenær straujárn er
orðið of heitt?“
„Já, auðvitað, það er þegar komin
er sviðalykt af fötunum."
(Víkingur).
Verðbólgan er þvi fólki að kenna, sem trúir á þá rómantísku kenningu,
að einhvern tíma muni launin ná verðunum.
Paul Sweeney.
Þveröfugt við hina gömlu trú,, að olían lægi ólgu, þá virðist hún nú
vera ein aðalorsök ólgu.
Clyde Moore.