Úrval - 01.07.1971, Page 37
BARÁTTAN GEGN HEROININU
35
Bandaríkin hefur tyrkneska stjórn-
in aðeins boðizt til þess að leggja
niður ópíumrækt á þeim svæðum,
þar sem ræktunin gengur erfiðleg-
ast.“ Og stjórn Demirels sjálfs gerði
líka ráð fyrir því, að með þessum
ráðstöfunum mundi ópíumfram-
leiðslan aukast um 25% í ár. *
ÁHRIFAMIKLAR
RÁÐSTAFANIR
Er Bandaríkjastjórn gerði sér
grein fyrir því, að hún gæti ekki
fengið Tyrki til þess að aðhafast
neitt, sneri hún sér til Eiturlyfja-
nefndar Sameinuðu þjóðanna. John
E. Ingersoll, forstöðumaður „Banda-
rískrar eftirlitsstofnunar eiturlyfja
og hættulegra lyfja“, hvatti til þess,
að gagngerar breytingar yrðu gerð-
ar á alþjóðalögum og skyldu sett
ný lög, er kæmu í stað núverandi
„sjálfviljuglegs“ eiturlyfjaeftirlits,
og í þessum nýju lögum skyldu
vera hörð ákvæði, sem hægt yrði að
framfylgja. Viðbrögð Sameinuðu
þjóðanna ullu vonbrigðum. Komm-
únistaríki og hlutlaus ríki skoða
eiturlyf bara sem „bandarísk
vandamál“, og líklegt er, að til-
raunir til endurbóta á alþjóðlegum
eiturlyfjalögum og reglugerðum
muni taka mörg ár, áður en nokk-
ur árangur næst.
Háttsettur embættismaður einn í
Washington mælir á þessa leið: ,,Nú
sem stendur er það Tyrkland, sem
er lykillinn að lausn vandamáls-
ins.“ Því halda umræður um „tyrk-
* Þ. 12. marz 1971 neyddi tyrkn-
eski herinn Demirel til þess að
leggja niður störf.
neska vandamálið“ áfram meðal
háttsettra embættismanna ríkis-
stjórnarinnar. Bandarískir embætt-
ismenn hafa meðal annars rætt efna-
hagslegar aðgerðir gegn Tyrklandi
eða stöðvun allrar efnahagslegrar
aðstoðar við Tyrkland. En samt
hefur verið ákveðið að grípa ekki
til slíkra ráða, a. m. k. ekki fyrst
um sinn, af ótta við, að slíkt geti
orðið tyrknesku ríkisstjórninni að
falli, en hún virðist vera hlynnt
Bandaríkjamönnum, án þess þó að
slíkar aðgerðir gætu bundið endi á
ópíumframleiðsluna.
Tyrkland hefur ekki efni á að
vanmeta miklu lengur viðhorf
bandarísku þjóðarinnar í þessu
máli. í fyrra samþykkti fulltrúa-
deild bandaríska þingsins lög, sem
veittu forsetanum vald til þess að
stöðva efnahagsaðstoð til hverrar
þeirrar þjóðar, sem „sýnir ekki
fullan samvinnuvilja“ við að að-
stoða okkur til þess að binda endi
á hið alþjóðlega eiturlyfjasmygl og
sölu. Þeir, sem studdu þessa laga-
breytingu, drógu engan dul á, að
henni var stefnt gegn Tyrklandi.
o—o
BORGARMORÐINGI
Húsið númer 9 við Vestra 102.
Stræti í New Yorkborg er þekkt um
gervöll Austurríkin sem staður, þar
sem örvæntingarfullur eiturlyfja-
neytandi getur örugglega fengið
heroinskammt. Samkvæmt upplýs-
ingum Richard Di Roma, yfirmanns
hinnar óeinkennisklæddu lögreglu í
24. borgarumdæminu, voru' gerðar
366 eiturlyfjahandtökur í húsi þessu
á 9 mánaða tímabili nýlega. En í