Úrval - 01.07.1971, Síða 44
42
ÚRVAL
inu fram hjá honum og eitthvað út
í buskann. í dögun sá hann aðeins
vatn í kringum sig' svo langt sem
augað eygði. Og á því flutu lík
karla, kvenna og barna og hræ af
nautgripum, uxum og kjúklingum.
Anwar velti því fyrir sér, hvort
svona væri ástatt um víða veröld.
Það var líklegt. Hafði hinn Heilagi
Kóran ekki spáð Dómsdegi? Þetta
hlaut að vera Dómsdagurinn sjálf-
ur. Hann reikaði um þorpið sitt,
sem var allt í rústum, og leitaði
að fjölskyldu sinni. Síðdegis tók of-
boðslegur þorsti að ásækja hann.
Hann gekk að tjörn þar nálægt og
vonaði, að vatnið í henni væri
drykkjarhæft. Og á yfirborði vatns-
ins sá hann tvö lík á floti. Það var
kona, sem hélt á litlum dreng í
fangi sér. Þetta var kona hans og
sonur.
HÖRMUNGARNAR VORU
OFVIÐA ÍMYNDUNARAFLINU.
Móðir Náttúra hefur alltaf farið
grimmilega með fólkið, sem býr á
óshólmasvæðum Gangesfljóts. Það
býr á einu versta hvirfilbylja- og
flóðöldusvæði heims og á landi, sem
er eins flatt og óvarið og slétturn-
ar í Kansasfylki. Hús fólksins eru
hálfgerð hrófatildur. Félagsheim-
ili og skólar eru einnig notuð sem
stormabyrgi, en þeir griðastaðir
rúma aðeins lítið brot allra íbú-
anna. Hvers vegna flytur fólk þetta
ekki burt? Vegna þess að það hefur
engan stað til þess að flytjast til.
Austur-Pakistan er líklega þéttbýl-
asta svæði heims. Þar býr næstum
þriðjungur af þeim fólksfjölda, er
býr í öllum Bandaríkjunum. Og
þessi manngrúi býr á svæði, sem
er minna en Wisconsinfylki.
Því er fólk þetta kyrrt á sínum
stað, þótt það viti, að ofsastormar
muni skella á því öðru hverju. En
þær hörmungar, sem dundu yfir
hinn dimma fimmtudag þann 12.
nóvember, voru ofviða ímyndunar-
aflinu. Er æðandi hvirfilvindurinn
geystist norður eftir Bengalflóa,
náði vindhraðinn 150 mílum á
klukkustund og myndaði smám
saman 20 feta flóðbylgju, sem hann
ýtti með sér beint á land upp.
Hve margir dóu þessa nótt? Rík-
isstjórnin skýrði frá því, að greftr-
unartalning hefði leitt í ljós, að
þeir hefðu verið 195.387, en þar að
auki væru 13.980 týndir og væri
álitið, að þeir væru einnig dánir.
Heildartalan var því 209.367 að á-
liti hennar. En þetta er alger lág-
markstala. Ekkert var vitað um
íbúatölu sumra smáeyja. Og íbúar
sumra þeirra hurfu með öllu, svo
að enginn var eftir lifandi. Tugir
þúsunda landbúnaðarverkamanna,
sem vinna að uppskerustörfum á
ýmsum stöðum, höfðu streymt úr
norðurhéruðunum til þess að skera
upp hrísgrjónin. Enginn veit, hversu
margir þeirra létu lífið. Aldrei var
neitt tilkynnt um greftranir, sem
framkvæmdar voru af hinum eftir-
lifandi fyrstu 48 klukkustundirnar
eftir flóðið. Heildartála látinna er
líklega yfir 300.000.
Samkvæmt mati sumra dóu enn
fleiri í jarðskjálftum í Kína árið
1856 og í flóðum þar árið 1887.
En verstu skráðu náttúruhamfarir
í sögu mannsins dundu samt yfir
þennan nóvemberdag.