Úrval - 01.07.1971, Page 46
44
ÚRVAL
irnir voru úttaugaðir og hungraðir
og sem lamaðir.
Við vöfðum hjúpum um líkin og
grófum gryfjur meðfram þjóðveg-
inum. Og er ég var að byrja að
moka mold yfir tíu lík, kom gamall
maður til mín og sagði við mig:
„Gerið mér greiða herra. Leyfið
mér að setja tvö af barnabörnunum
mínum í gröfina yðar“.
VIÐBRÖGÐ UMHEIMSINS
Engin þjóð er búin undir slíkar
ógnir, sem dundu yfir þennan hrylli-
lega sólarhring. Það er aðeins hægt
að gera eitthvað til að draga úr
áhrifum verstu hörmunganna, eftir
að þær hafa dunið yfir. Forseti Pak-
istan, Mohammed Yahya Khan hers-
höfðingi, fékk hernum það hlutverk
að sjá um hjálparstarfið. Þar var
um ógnvænlegt, illvinnandi við-
fangsefni að ræða.
A laugardeginum byrjaði herinn
að kasta niður matvælum og öðrum
birgðum með hjálp tveggja flutn-
ingaflugvéla, en mikið af birgðum
þessum skemmdust, er þær skullu
til jarðar. Bátar og flutningapramm-
ar í höfnum utan flóðasvæðisins
voru hlaðnir matvælum og öðrum
birgðum. Og svo sigldu þeir til
leðjueyjanna. Skipstjórarnir sýndu
ýtrustu varkárni, því að mörg ný
sandrif höfðu myndazt og djúpu
álarnir voru víða annars staðar en
þeir höfðu áður verið. Verkfræð-
ingar hersins tóku að vinna með
vegagerðar- og brunngraftartækj-
um á þriðjudeginum. Og á eftir
þeim komu svo menn frá fjarskipta-
deildum hersins með senditæki, út-
varpssendistöðvaútbúnað, rafala og
síma.
1. Eftir hvern er skáld-
sagan Love story?
2. Hvaða frægur Dani
var myrtur 5. janúar
1944?
4. Hvaða íslenzkur rit-
höfundur var myrtur
haustið 1241?
5. Eftir hvern er hið
fræga ljóðasafn Lea-
ves of grass?
6. Hvaða hnöttur er
næstur jörðinni?
9
□
VtlZTU
7. Eftir hvern er bók-
in Gerska ævintýr-
ið?
8. Hvað heitir slökkvi-
liðsstjórinn í Rvík?
9. Hvað heitir listaverk
Ásmundar Sveins-
sonar fyrir utan
Hótel Loftleiðir?
10. Hvað heitir söng-
málastjóri þjóð-
kirkjunnar?
Svör á bls. 79.
J
v